Kynning á Zpey græjum

Ein af Sunray túpum Andersens.
Veiðihornið verðru með góðan gest um helgina, Henrik Kassow Andersen sem er sérfræðingur hjá Zpey, en hann mun kynna allt það nýjasta frá fyrirtækinu og einnig afbrigði sitt af hinni skæðu laxaflugu Sunray Shadow
Í fréttatilkynningu frá Veiðihorninu segir eftirfarandi: „Íslandsvinurinn Henrik Kassow Andersen verður gestur Veiðihornsins um helgina og kynnir norsku stangirnar, hjólin og línurnar frá Zpey ásamt tilbrigði sínu við Sunray túpurnar skæðu.
Henrik verður staddur í Veiðihorninu Síðumúla 8 á föstudag frá 12 til 18 og gefst gott tækifæri til þess að kynnast þessum mögnuðu stöngum. Þá verður Henrik með kynningu á Zpey stöngunum á Miklatúni við Kjarvalsstaði á föstudagskvöld frá 19 til 21. Á laugardag frá 12 til 15 verður Henrik aftur staddur í Veiðihorninu Síðumúla 8 en auk Zpey kynningarinnar ætlar hann að kynna og hnýta nokkrar HKA Sunray túpur sem hafa verið notaðar af þröngum hópi manna við veiðar í Rangánum um árabil.“
