Nokkrar að opna á morgun

Frá Kjarrá. Veiðihúsið við Víghól er til hægri. Mynd Einar Falur.
Nú er laxveiðitíminn um það bil að fara á flug. Síðan 5.júní höfum við fylgst með Blöndu og Norðurá ásamt Straumunum. Nú bætast nokkur þekkt svæði við á morgun (þriðjudag).
Við erum að tala um Þverá og Kjarrá. Sem er reyndar sama áin, bara sitt hvort svæðið eins og kunnugt er, 7 stangir á hvoru svæði og áin ógurlega löng. Veiði hefst á síðdegisvaktinni og vonandi getum við fært ykkur fréttir þegar líða tekur á vaktina. Þverá og Kjarrá eru þó í eðli sínu allt öðru vísi opnanir en Norðurá, þar sem menn binda sig niður á fáa veiðistaði og ganga nánast að laxinum vísum á þeim. Þverá/Kjarrá er hins vegar fyrirstöðulaus með öllu og menn rekist á laxinn nánast hvar sem er. Skilyrði eru góð í Borgarfirði og má búast við líflegri opnun miðað við það sem gerst hefur annars staðar. Búast menn við því að sjá til laxa á jafnvel efstu svæðum Kjarrár.

Óvenjumikið hefur gengið af laxi snemma sumars í Elliðaárnar, en þeir komast ekki lönd né strönd því teljarakistan er læst. Mynd Heimir Óskarsson.
Þá opnar Laugardalsá við Djúp einnig á morgun. Hún hefur löngum opnað fremur snemma og hefur all oft verið innistæða fyrir því, en ekki á vísan að róa. Í ár eru hins vegar allir svo bjartsýnir að eflaust smitar það yfir í veiðina.
Á næstunni opna árnar síðan hver af annarri. Á sunnudagsmorguninn, 20.júní, opna til dæmis Elliðaárnar og Laxá í Aðaldal. Elliðaárnar verða opnaðar af nýjum borgarstjóra sem kunnugt er. Jón Gnarr mun hafa eitthvað fiktað við flugustöng síðustu árin, en fregnir herma að Maríulaxinn hafi ekki geyspað golunni enn. Mikið er af laxi í ánni og sést hann mikið, t.d. í Teljarastreng, Fossinum, Breiðunni og kvörnunum niður af Sjávarfossi. Í gærkvöldi stökk lax mikið í ósnum á háflæði og nú í kvöld(mánudagur) var stærstur straumur. Laxinn gengur ekki upp ána því teljarakistan við gömlu rafstöðina hefur verið lokuð. Kistan er notuð til gönguseiðamælinga fram eftir vori, en hefð mun vera að opna ekki kistuna fyrir laxgengd fyrr en daginn áður en áin er opnuð. Hvernig stendur á þeirri hefð liggur ekki fyrir, SVFR vísar á OR, sem er umsjónaraðili árinnar fyrir hönd Reykjavíkur, og OR vísar á SVFR, sem er umboðssali veiðileyfa í ána! Kannski að það sé kominn tími til að rjúfa hefðina, í það minnsta hefur komið það mikið af laxi óvenjulega snemma núna, að áin hefði getað verið virk alveg upp í Höfuðhyl í opnuninni ef laxinum væri ekki haldið í herkví fyrir neðan teljaragrindurnar.
