Lýsan í útboð

Það hefur verið dálítið líflegt á útboðsmarkaðinum að undanförnu og síðasta svæðið sem við heyrðum af í þeim efnum var hið þekkta Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi. Lax-á hefur haft það svæði á leigu um nokkurt árabil.
Vatnasvæði Lýsu, eða Lýsusvæðið, eins og það er gjarnan nefnt svona dags daglega, er mjög sérstakt svæði. Þar er töluverð laxveiði, en samt er engin eiginleg laxveiðiá á svæðinu. Lækjarstubbar á milli vatna og svo reyndar Vatnshotlsáin sem fellur síðasta kaflann út í sjó. Hún er stutt en þar setja menn helst í laxa sem stoppa og kasta mæðinni á göngu, t.d. við gömlu brúna. Mest af laxinum veiðist í vötnunum og þau eru þrjú. Auk laxins finnast allar gerðir íslenskra ferskvatnsfiska á Lýsusvæðinu, bæði sjógengin og staðbundin bleikja og það sama um urriðann. Það er bæði vænn fiskur þarna og smærri og er það nokkuð svæðabundið hvort að menn eru í sæmilegum fiski eða smælki. Smærri bleikjan er oft í miklum torfum í lækjunum, sérstaklega í Króká/Netá, milli mið- og neðsta vatnsins. Stundum sjóða hyljirnir og það getur verið gaman aðv eiða þar þó að stærðin á fiskinum sé mest um og innan við pundið.
Svo er sveitin þarna einstaklega fögur og fríð. Það verður fróðlegt að vita hvernig útboðinu reiðir af.
