votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Rigningarsumar í vændum?

12.6.2010

 

Flóð ó Elliðaánum

Hér gengu veðurguðirnir kannski skrefinu of langt. Myndin er frá Elliðavatnsstíflu. Mynd Jón Valgeirsson.

Það þarf ekki að minna stangaveiðimenn á að síðustu sumur hafa mörg hver ef ekki nánst öll einkennst af löngum þurrkum í kjölfar snjóléttrra vetra. Það hefur leitt af sér að „besti“ tíminn í flestum laxveiðiánum hefur alls ekki verið svo góður vegna vatnsskorts. Nú spáir þekktur veðurfræðingur allt öðru dæmi.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur er Íslendingum að góðu kunnur. Hann heldur úti skemmtilegri veðursíðu á Netinu. Þar tekur hann fyrir allt milli himins og jarðar sem viðkemur veðurfari hér á landi og víðar á hnettinum. Nýverið, eða þann 21.mai síðast liðinn tók Einar sig til og skrifaði grein þar sem hann fór yfir veðurhorfur fyrir sumarið. Hann tekur fram að ekki sé um spá eftir tilfinningu, heldur séu meðaltöl og reiknilíkön með í púslinu. Niðurstaða Einars er athyglisverð og hlýtur að gleðja stangaveiðimenn sem eru orðnir lang þreyttir á vatnslausum laxveiðiám.

Gufuá í þurrki

Hér hefðu þeir hins vegar getað gert betur! Myndin er frá Gufuá í Borgarfirði og hana tók Sigurður Garðarsson.

Í pistlinum segir Einar meðal annars þetta:

„Sumarmánuðirnir, júní til ágúst munu verða í hlýrra lagi og hitinn víðast markvert ofan meðallags.  Meiri líkur en minni eru á því að sumarið sunnan- og vestantil á landinu verði fremur vætusamt, að úrkoma verði ofan meðallags mánuðina þrjá.  Þá er að sjá sem vindur af S og SV verði algengari á kostnað NA-áttar. „

Menn geta síðan lesið sig til á vefsíðunni og nóta bene, greinin er á síðu tvö og dagsett 21.mai. Slóðin er:   http://esv.blog.is/blog/esv/ 

Og menn geta litið á upphaf laxavertíðarinnar í þessu ljósi og leyft sér að fyllast bjartsýni. Þegar þessar línur eru ritaðar bylur regnið á húsþökum á Suðvesturhorninu og vonandi um allt Vesturland. Og við erum líka nýstiginn upp úr vænni rigningarlægð sem hleypti miklu lífi í veiði og göngur í Norðurá. Rigningarsumar í vændum? Það væri sérstök tilbreyting eftir mörg þurrkasumur í röð.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica