votnogveidi_Fors_2009-02
almennt

Lax að ganga í Víðidalsá og Aðaldal

9.6.2010

 

Kerið í Fitjá

Kerið í Fitjá. Rétt þar ofan við er Kerfoss. Þarna hafa laxar verið að raða sér upp að undanförnu. Mynd Stefán Sigurðsson.

Það bætir enn í flóru laxveiðiáa þar sem menn hafa séð til laxa, í sumum tilvikumm löngu áður en opna skal viðkomandi ár fyrir veiði. Nú síðast fréttum við af Víðidalsá og Laxá í Aðaldal, en í Víðidalnum er sögð talsverð laxgengd.

Samkvæmt upplýsingum frá Lax-á sem fer með sölu veiðileyfa í ánni, hafa sést nokkrir laxar í svokölluðum Kerfossi í Fitjá. Fitjá er sem kunnugt er hliðará Víðidalsár og svæðið í kring um Kerið og Kerfoss, er það svæði þar sem menn sjá oftast fyrstu laxana í byrjun sumars. Þetta kemur því alls ekki á óvart. Samkvæmt Lax-á þá telja menn að talsverð laxgengd sé í ána, þ.e.a.s. Víðidalsá og Fitjá, og líkja því jafvel við stórglæsilega opnun veiðinnar í Blöndu sem er þarna á næstu grösum.

Þá hafa borist þau tíðindi úr Aðaldalnum, að laxar hafi sést á lykilstöðum neðan við Æðarfossa. Þær fréttir þurfa ekki að koma neinum á óvart miðað við fréttir annars staðar frá að undanförnu. Menn hljóta að spyrja sig hvað þessir snemmgengnu laxar merkja. Eru þeir ávísun á eitthvað óvenjulega mikið meira en venjulega eða hefur eðlileg laxgengd einfaldlega færst fram um einhverjar vikur/daga af einhverjum umhverfisástæðum? Kannski að náttúran sé með þessu að svara vaxandi vatnsleysi um hásumar vegna snjóleysis, hver veit.

Fréttir af laxgengd í Sogið hafa vakið talsverða athygli, enda eru laxagöngur umfram lax og lax á stangli þar í júnímánuði nánast óþekktar. Einn lesandi VoV taldi það hafa vantað í fréttina að laxveiði í ánni væri bönnuð fyrr en 21.júní. Hins vegar eru veiðimenn á silungsveiðileyfum víða í ánni og spurning hvort að einhverjar sérstakar reglur gilda ef þeir setja í lax? Eða ætti ekki bara að skoða það sem bónus?




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica