Fluguveiðiskóli fyrir börn og unglinga
Hópur ungra veiðimanna hefur stofnsett fluguveiðiskóla fyrir börn og unglinga. Skólinn er með aðsetur í gamla Elliðavatnsbænum og námskeið hefjast í sumar.
Í fréttaskeyti sem Börkur Smári Kristinsson sendi frá sér fyrir hönd hópsins segir eftirfarandi: „Í júní og júlí verða haldin fluguveiðinámskeið fyrir unglinga upp við gamla Elliðavatnsbæinn. Það sem verður farið yfir á námskeiðinu eru fluguköst, fluguhnýtingar, öryggi í veiði, búnaður í veiði, atferli fisksins, meðhöndlun og eldun afla sem og fleira.
Hulda Jónasdóttir með fallegan feng úr Brúará. Mynd Einar Guðnason.
Námskeiðin eru annaðhvort 3 daga (fyrir eða eftir hádegi eða allan daginn) eða 5 daga (fyrir eða eftir hádegi) og eru fyrir unglinga á aldrinum 10-17 ára. Helstu upplýsingar um skráningar og dagsetningar námskeiða má finna inn á http://www.veidiheimur.is/
Auk Barkar, standa Einar Guðnason og Rut Valgeirsdóttir að fluguveiðiskólanum. Í kynningu á heimasíðu þeirra má lesa að þau eru margreynd í fluguveiði þó að þau séu ung að árum. Athygli vekur einnig þegar síðan er skoðuð hversu hóflega námskeiðin eru verðlögð.
