Það er væta í kortunum
Það er rigning í kortunum seinna í vikunni, en ef kortin eru skoðuð á vef Veðurstofunnar, þá er stórt spurningarmerki yfir Norðurá, einu laxveiðiánni sem er opin á svæðinu. Hvort að hún muni njóta góðs af.
Strax á miðvikudaginn er komin „lítils háttar rigning“ á sunnan- og vestanvert landið, en það er svo fimmtudagurinn sem er með aðal fyrirheitin. Þá eru rigningartákn á kortunum um allt sunnanvert landið.. Hins vegar eru táknin fyrir bæði Hvanneyri og Holtavörðuheiði „lítils háttar rigning“. Aftur á móti er rigningarspáin afgerandi fyrir Snæfellsnes og Vestfirði þannig að veðurspámenn eru greinilega ekki þannig þenkjandi í augnablikinu að rigningin muni ná inn í landið að neinu ráði að vestanverðu. En það getur margt breyst á fáum dögum í veðurkerfunum, svo mikið er víst. Óhætt er að segja að áhugamenn um Norðurá verða á bæn og með fingur krosslagða. Þar er þó nokkuð af laxi, en skilyrði vegna vatnsleysis afar döpur eins og fram hefur komið.
Myndin að ofan er síðan 2008, en þá varð Norðurá svo gott sem vatnslaus. Sigurður Garðarsson tók myndina þegar ástandið var hvað verst.
