votnogveidi_Fors_2009-05
almennt

Dagarnir taldir – margt í boði

8.3.2010

 

Tungufljot_010406A

Valgarður Ragnarsson er einn þeirra sem getur ekki beðið og iðar í skinninu. Hér er hann við Tungufljót og sýnir hvernig flugur hann notar á vorbirtinginn. Mynd Heimir Óskarsson.

Það er nú svo komið að margir eru farnir að telja daganna fram að formlegri opnun vertíðarinnar 2010, en hún era ð sjálfsögðu 1.apríl næst komandi. Þetta er sem sagt alveg að bresta á. Vorveiði snemma á vorin er ekki allra og afar margir bíða þar til að vorar meira, enn aðrir fara ekki fet fyrr en sumarið er komið. En vorveiði apríl getur verið heillandi veiðiskapur.

Oftast er aprílveiði tengd við sjóbirting í Vestur Skaftfellskum fallvötnum og svo í Varmá, en sums staðar er það staðbundinn silungur sem er bráðin, fjölbreytninni er því fyrir að fara. Eins og menn vita getur veðurfar leikið menn grátt sem standa við veiðar. Haglél dynja á mönnum og fingur dofna. En það er vor í lofti, svo margt staðfestir það, farfuglum fjölgar með hverjum deginum, það er bjart fram á kvöldin og ef það árar vel þá sjá menn gróðurinn taka við sér.

 Varma_010406B

Það er oft kuldalegt á veiðislóð í apríl, hér eru þeir Sigurður Rósarsson t.v. og Þorleifur Gunnlaugsson við Varmá á opnunardegi fyrir fáum árum. Mynd Heimir Óskarsson.

Vorveiðimönnum stendur margt til boða. Í sjóbirtingi eru all nokkrar Skaftfellskar ár sem opna. Tungulækur, Tunguflót, Vatnamótin, Eldvatn, Hörgsá og Geirlandsá. Norðan heiða opnar Litlaá í Kelduhverfi á þessum tímapunkti, einnig Varmá/Þorleifslækur við Hveragerði. . Þeir sem vilja frekar veiða staðbundinn silung geta snúið sér að Soginu, Brúará, Hólaá við Laugarvatn, Minnivallalæk, Galtalæk auk þess sem margir eiga eflaust sína leynistaði . Síðan opna nokkur stöðuvötn sem Veiðikortshafar geta bleytt færi í, t.d. Hraunsfjörður, Víkurflóð og fleiri.

Vorið er í nánd og menn finna fyrir því þegar veður er eins og það er þessa daganna. En það er fleira, fýllinn er sestur upp og glöggir menn hafa séð til farfugla, t.d. sílamáfa. Þá eru staðfuglar farnir að hugsa sér til hreyfings og álftir og ýmsar endur sjást nú í túnum og mýrum þar sem þær væru ekki fyrir skemmstu. Það er full ástæða til að mæla með því að menn reyni vorveiðina, þeir sem hana stunda telja margir fáa veiðitúra skemmtilegri. Gunnar Óskarsson formaður SVFK sagði eitt sinn í samtali við VoV að vorveiðiferðirnar væru ótrúlega oft bestu veiðiferðir ársins þegar allt væri gert upp.

 

 


Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica