Forsýning á óborganlegri veiðikeppni
Nú er innan við mánuður í nýja vertíð. Menn telja daganna og sumir eiga erfitt með sig. En til að drepa tímann er fátt betra en að skella sér á opið hús hjá SVFR, en næsta slíkt er annað kvöld í sal félagsins í Austurveri. Margt verður þar til gamans gert.

Sævar Örn Hafsteinsson formaður skemmtinefndar SVFR segir að um “Skemmtinefndarkvöld” sé að ræða þar sem tveir fyrrverandi skemmtinefndarmenn ríði á vaðið í dagskrá kvöldsins, en þar verða á ferðinni tvíbbarnir Ásmundur og Gunnar Helgasynir sem munu kynna í máli og myndum veiðiþætti sem þeir unnu á síðasta sumri, einhverskonar veiðikeppni þeirra bræðra sem hlýtur að vera óborganleg skemmtan, ekki hvað síst þar sem áhorfendur eiga varla eftir að vita á hvorn þeir eru að horfa hverju sinni, svo líkir eru þeir! (sjá mynd)En allt um það, þá verður forsýning á einum af þáttunum.
Margt fleira skemmtilegt verður á boðstólum og af öðru efni finnst okkur VoVurum mest til koma veiðistaðakynning Jóns G.Baldvinssonar á Stóru Laxá í Hreppum, þeirri mögnuðu veiðiperlu, en fáir þekkja ána betur en Jón G.Bald. Annars er nánari lýsing á dagskránni á síðu SVFR, http://www.svfr.is/
