Framhald á urriðaveiði á svæðum Laxárfélagsins
Vigfús Orrason veiddi einn af þeim stærstu í fyrra, 6-7 punda drjóla við útfall Mýrarkvíslar í Laxamýrarlandi.
Áframhald verður á urriðaveiði á svæðum Laxárfélagsins í Laxá í Aðaldal á
vori komanda, en opnað var fyrir tilraunaveiði af því tagi á síðasta vori,
áður en laxavertíðin hófst. Gaf tilraunin mjög góða raun, enda er Laxá
firnagóð urriðaveiðiá á þessum slóðum.
Ágætlega veiddist á þessum svæðum í fyrra en alls voru 320 urriðar færðir til bókar á stærðarbilinu 35 – 67 cm, eða frá c.a 1 pundi upp í ríflega 6 pund. Mest var af stæðinni í kringum 40 – 45 cm sem er silungur á bilinu 2 –3 pund. Vitað er, að afli var talsvert meiri, því að margir skráðu
aðeins það sem þeir hirtu á meðan enn aðrir skráðu aðeins fiska í stærri
kantinum sem þeir settu í og drógu á land.
55 cm urriða landað á móti Laxhólma. Mynd Vigfús Orrason.
Hefðbundnar straumflugur s.s. Black ghost, Rektor, Gray Ghost, Mickey Finn, Dýrbítur ofl. ásamt Nobblerum gáfu ágæta veiði. Þá veiddist mjög vel á kúluhausa með andstreymisaðferð, sérstaklega fyrri hluta tímabilsins. Þeir helstu voru Krókur, Beygla og Drjúgur en einnig veiddist á Peacock og Pheasant tail.
Einungis er veitt á flugu á svæðinu og verður fyrirkomulag með svipuðu sniði og síðasta vor, með þeirri breytingu að nú eru veiðileyfi seld með gistingu í Þinghúsinu við Hraunbæ og kostar stöngin 15.000 kr. á dag. Seldir eru saman þrír dagar en hægt þó er hægt að fá staka daga í maí. Síðustu þrír dagarnir eru seldir án gistingar og þá er einnig hægt að fá staka daga. Þinghúsið stendur nánast á árbakkanum fyrir landi Hólmavaðs. Þar er rými fyrir 12 veiðimenn. Einnig hefur verið samið við landeigendur að Hólmavaði og Ytra-Fjalli en ef hópar eru stærri en 10 er möguleiki á að bæta við stöngum fyrir landi þeirra. Landeigendur þessara jarða ákváðu, eins og kunnugt er, að semja við Nestorfuna um laxveiðihluta vertíðarinnar og því eru þessi svæði almennt ekki í sölu þetta vorið.
Efst á forsíðu er auglýsing sem vísar inn á upplýsingasíðu umsjónaraðila
veiðanna, en slóðin á hana er annars http://www.silunga.net/
