votnogveidi_Fors_2009-01
almennt

Langá frá Laxi ehf til SVFR

1.3.2010

  

 

Hitsaður á Strengjunum

Heimir Óskarsson búinn að setja í einn í Strengjunum í Langá í fyrra. Mynd Jón Eyfjörð.

Breytingar á útleigumálum Langár á Mýrum hafa verið í farvatninu að undanförnu og um helgina var breyting samþykkt á almennum félagsfundi landeigenda við Langá. Leigutakinn Lax ehf dregur sig í hlé en SVFR yfirtekur samninginn.

Veiðileyfasalar upp til hópa komu illa út úr efnahagshruninu og Lax ehf er þar engin undantekning. Lárus Gunnsteinsson stjórnarformaður Lax ehf sagði í samtali við VoV í kvöld að þessi niðurstaða kæmi í kjölfarið á uppstokkunum og endurskoðun síðustu missera.

Vaðið í land

Dyrfljót í Langá. Mynd Heimir Óskarsson.

”Lax ehf hefur verið að fara yfir sín mál og það er ekkert launungarmál að við komum ekki vel út úr 2008 og 2009. Þetta hefur verið þungur róður og Lax ehf telur sig ekki í stakk búið að halda áfram með Langá. SVFR var aðili að leigusamningi Lax ehf að Langá í þeim skilningi að við vorum leigutakinn, en SVFR hafði helming daganna. Best var og eðlilegt að áin færðist yfir til þess veiðileyfasala sem stendur sterkastur í dag miðað við aðstæður, þannig skaðast síður veiðiréttareigendur og veiðimenn, en SVFR hefur víðan og stóran viðskiptamannagrunns em byggir á góðum meiði,” sagði Lárus.

En þar fyrir utan sagði Lárus að veiðileyfamarkaðurinn væri vissulega að taka við sér. ”Jú, ég tel það vafalaust. Það er mikið meira hringt og falast eftir leyfum þar sem maður þurfti í fyrra að standa mikið í því sjálfur að hringja út og suður og heyra í mönnum. Við erum með ýmsar ár, t.d. Hafralónsá, Svalbarðsá, Vesturdalsá, Grímsá og Laxá í Kjós og þær eru vel seldar. Það er gott að vita til þess því menn þurfa að vinna upp tap síðustu ára og styrkja stoðirnar á ný,” bætti Lárus við.


Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica