Stangaveiðiárbókin á bókamarkaðinum í Perlunni
Þeir sem að safna Íslensku stangaveiðiárbókinni, sem í seinni tíð hefur heitið Vötn og Veiði, líkt og vefurinn okkar, geta stoppað í götin á Bókamarkaðinum í Perlunni því að þar er að finna marga árganga aftur í tímann.
”Ég fór með öll ári aftur til 1994, utan að 1995 finnst ekki. Og svo fór ég ekki með nýjustu bókina, 2009. Það er sífellt verið að hafa samband við okkur, veiðimenn sem safna bókinni og vantar inn í. Nú er kjörið færi til að ná í bækur og verðið er gott, sama verð fyrir bækur úr öllum árgöngum, 990 krónur,” sagði Konráð Ingi Jónsson prentsmiðjustjóri í Litróf, sem er útgefandi Vötn og Veiði – Stangaveiðin á Íslandi....
2007 bókin er meðal þeirra sem finna má í Perlunni.
Árið 1994 er til marks um það hvenær Litróf kom að útgáfu bókarinnar, en fyrir þann tíma voru aðrir í því hlutverki, Ísafoldarprentsmiðja og Frjálst Framtak sáluga. Bókin hefur komið út í ýmsum myndum og undir ýmsum nöfnum allt frá árinu 1988, en eldri árganga heldur en 1994 mun vera nokkur leit að þó að bækur á stangli finnist á mörkuðum hér og þar.
