Hverjar eru bestu árnar?

Búið að setja í lax í Nautafljóti í Laxá á Ásum. Mynd Benedikt Erlingsson.
Löngum hefur Þorsteinn á Skálpastöðum tekið saman veiðitölur á vef Landssambands veiðifélaga, http://www.angling.is/ . Þar getur nú að líta lokatölur úr flestum helstu laxveiðiám landsins. Þar er fróðlegt að reikna út meðalveiði á stöng miðað við uppgefinn stangarfjölda og finna alveg nýja uppröðun ána í kjölfarið.
Hér að neðan kemur sem sagt listi yfir hæstu árnar miðað við meðalveiði á uppgefinn stangarfjölda. Þesi listi hefur þó ákveðna annmarka í einhverjum tilvikum, þ.e. stangarfjöldi er á stöku stað breytilegur og síðan er það þekkt að veiðitími hinna svokölluðu hafbeitaráa er oftast lengri heldur en í öðrum laxveiðiám. En hér kemur þó listinn með umræddum fyrirvörum og hann byggir á lokatölum og uppgefnum stangarfjölda einstakra áa eins og það kemur fyrir að vef LV.
Laxá á Ásum 571
Ytri Rangá 537
Leirvogsá 438
Miðfjarðará 400
Andakílsá 353
Búðardalsá 316
Haffjarðará 270
Víðidalsá 252
Selá 249
Flókadalsá 248
Eystri Rangá 239
Álftá 238
Laxá í Dölum 238
Skógá 227
Langá 225
Haukadalsá 221
Vatnsdalsá 217
Hrútafjarðará 216
Laxá í Leir. 211
Blanda 210
Vatnsá 190
Straumar (Hvítá) 180
Norðurá 172
Þverá 169
Grímsá 167
Laugardalsá 167
Hofsá 163
Elliðaárnar 147
Svartá 142
Laxá í Kjós 140
Hér kveður sannarlega á við annan tín heldur en þar sem aðeins er stuðst við beinharðar heildartölur. Laxá á Ásum á fornum slóðum og Leirvogsá skammt undan eins og svo oft áður og athyglisvert að sjá nöfn eins og Andakílsá og Búðardalsá meðal sex efstu nafna og sama má segja um Miðfjarðará, en þar var náttúrulega fáránlega góð veiði í fyrra. Borgfirsku stórárnar koma ekki vel út í meðalveiði á stöng, en helgast kannski af því hversu langvarandi þurrkar léku veiðina grátt í þeim.
