Silungaflugukeppni Krabbameinsfélagsins
Krabbaflugan 2007 var laxafluga sem hefur gefið veiði, höfum við heyrt, enda veiðileg fluga.
Krabbameinsfélagið gengst nú í annað skiptið fyrir fluguhnýtingakeppni, gerði það síðast hið gagnmerka ár 2007. Tilgangurinn er að lífga upp á skammdegið fyrir stangaveiðimenn og skaffa sér flugu til fjáröflunar í leiðinni.
Að sögn Gústafs Gústafssonar markaðsstjóra hjá Krabbameinsfélaginu eru þrír valdir samstarfsaðilar félagsins SVFR, Veiðihornið og Veiðikortið, en viðkomandi leggja til svo glæsilega vinninga, að alls sex slíkir fyrir þrjú efstu sæti tveggja flokka, eru að andvirði 590þúsund krónur.
Flokkarnir eru tveir, almennur flokkur og flokkur unglinga 16 ára og yngri. Unglingar á þeim aldri mega þó keppa í almenna flokkinum ef þeir kjósa svo, en þá fyrirgera þeir rétti til að keppa með yngri hópnum. Það má sem sagt aðeins keppa í einum flokki. Hver keppandi verður að vera hönnuður flugna sinna og má hver og einn senda inn eins margar flugur og hann kýs. Hver fluga verður að berast Krabbameinsfélaginu í hlífðarpakkningum ásamt leyniorði eða númeri og skal það tákn einnig berast í umslagi með hverjum pakka og í umslaginu fylgja síðan allar aðrar upplýsingar um keppanda, eins og nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og svo framvegis.
Keppt er um silungaflugu og skipar Krabbameinsfélagið dómnefnd. Félagið áskilur sér rétt til að fjöldaframleiða sigurflugurnar í fjáröflunarskini. Skilafrestur er 19.mars næst komandi og skal skila flugum til Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík. Þá verður tekið til við að fara í gegnum innsendar flugur og þegar dómnefnd hefur lokið störfum verða umslög opnuð og vinningshafar kynntir á vefjum Krabbameinsfélags Íslands og samstarfsaðilum þeirra.
Sem fyrr segir er um sérlega glæsilega vinninga að ræða. Í fyrstu verðlaun í almennum flokki er í vinning ein stöng, 20.-23.júlí, með fæði og uppihaldi í Laxá í Laxárdal í Suður Þingeyjarsýslu, eða á neðri hluta hins rómaða urriðasvæðis Laxár ofan virkjunnar. Einnig er í vinning Sage Axis flugustöng og Veiðikortið, allt saman samtals að andvirði 226þúsund krónur. 2.vinningur gefur dag að eigin vali í Varmá/Þorleifslæk næsta haust, Simms Freestone vöðlur og vöðluskó auk Veiðikortsins, alls að andvirði 63.900. 3.verðlaun gefa Scierra D-Lite fluguhjól, Scierra HMT skotlínu og Veiðikortið, alls að andvirði 46þúsund krónur.
Í Unglingaflokki er þetta ekki mikið lakara, fyrstu verðlaun eru stöng í Laxárdalnum með öllu líkt og í Almenna flokkinum, sömu dagar í boði. Einnig Zpey Combo fluguveiðisett (stöng, hjól, lína og taumar) í vönduðum hólki, og Veiðikortið. Allt að andvirði 176þúsund krónur. 2.verðlaun gefa í aðra hönd valinn dag í Varmá/Þorleifslæk næsta haust, Scierra D-Lite fluguhjól, HMT skotlínu og Veiðikortið, allt saman að andvirði 53.900 krónur. 3.verðlaun gefa síðan Simms veiðivesti og Veiðikortið, andvirði 24þúsund krónur.
