Guðni segir horfur vissulega vera góðar

Ein af klassískum myndum Heimis Óskarssonar "úr iðrum" Miðfjarðarár á síðasta sumri. Myndin er tekin í Arndísarhyl í Vesturá, en margir hyljir árinnar voru stappaðir af fiski líkt og hér sést.
“Þeir gerðu nú aðeins meira úr þessu en efni stóðu til, sannast sagna vantar allt of mikið af gögnum enn þá til að hægt sé að spá fyrir um sumarið 2010, það er meira þannig að ég hafi aðeins rætt um horfur um leið og ég gerði upp síðasta sumar. Og það er sannarlega engin ástæða til neinnar svartsýni og horfur eru yfir höfuð nokkuð góðar,” sagði Guðni Guðbergsson fiskifræðingur hjá VMSt í samtali við VoV í dag.

Falleg handtök í Myrkhylsrennum í Norðurá. Þarna var metveiði 2008 og afar góð veiði í fyrra þó að metið héldi. Mynd Heimir Óskarsson
Laxveiðispá Guðna fyrir 2010 var boðuð á opnu húsi hjá SVFR í gærkvöldi, en hann vill sjálfur tala um horfur frekar en spá. Guðni sagði í samtali við VoV: “Við erum ekki komnir með allar tölur í hús. Við eigum eftir að fara yfir talningar, veiðihlutföll, seiðamælingar og við eigum enn eftir að lesa úr talsverðu af merkjum. Við höfum verið á kafi í þessu í vetur, en vinnan er ekki búin og síðan er greiningarvinna eftir.
Dagur Garðarsson að landa um 100 cm trölli í Kerfossi í Álftá, þar var metveiði 2008 og hörkuveiði í fyrra líka.
En ef við reynum að meta horfur þá virðast þær yfir höfuð vera í það minnsta í þokkalega góðu lagi. Auk þess sem sú hlýnun sem við höfum upplifað síðustu árin virðist hafa leitt til þess að jaðarár hafa framleitt meira af laxi. Ég veit ekki endilega hvort að horfurnar eru jafn frábærar og 2008 þegar metveiði var landað, en horfur geta vissulega talist ágætar.
Þegar horft er til baka kemur í ljós að góð ár og slæm ár í veiðinni virðast fylgjast að og að undanförnu hafa verið góð ár. 2008 var metveiði í mörgum ám á Vesturlandi, en 2009 var aftur metveiði í mörgum ám á vestanverðu Norðurlandi. Þetta er svipað og var að gerast á áttunda áratugnum, þegar metveiði var víða vestan til 1976 og síðan í kjölfarið á norðanverðu landinu.
Blanda, ein af mörgum ám norðanlands sem gaf metveiði í fyrra, hér er Egill Guðjohnsen að þreyta einn í opnuninni. Mynd Ingi Freyr Ágústsson.
Í sjálfu sér virðist ekkert vera í kortunum sem bendir til þess að þetta haldi ekki áfram á góðu nótunum enn um sinn. Það má hins vegar ekki gleyma því að við eigum í sjálfu sér ekkert spálíkan og að velta þessu fyrir sér er ekki ósvipað því að vera að keyra bíl og horfa alltaf út um afturgluggann. Ef vegurinn er beinn, þá fer allt vel, en ef það koma óvæntar beygjur þá getur það sett strik í reikninginn. Síðan er ekki hægt að tala um laxveiði og horfur lengur án þess að taka hafbeitarárnar með í reikninginn. Þessar ár eru komnar til að vera og eru að gefa gríðarlegan afla, um 30.000 árið 2008 og um 20.000 í fyrra. Þegar við skoðum þá staðreynd að sumarið 1984, þegar engar hafbeitarár voru til, veiddust 23.000 laxar á landinu öllu, þá sér maður hversu gríðarlega þessar ár hafa breytt landslaginu, þá ég við það magna f laxi sem veiðimenn hafa til að veiða úr.”
