votnogveidi_Fors_2009-03
almennt

Guðni ætlar að spá í kvöld

5.2.2010

 

0015

Hvernig ætli laxveiðin verði 2010? Mynd Einar Falur.

Það gæti orðið til einhvers að mæta á Opið hús SVFR í félagsheimilinu í Austurveri við Háaleitisbraut í kvöld, því Guðni Guðbergsson, sérfræðingur í laxveiðispám, ætlar að tefla fram spá sinni fyrir 2010. Guðni hefur reynst býsna sannspár síðustu árin, en þó verið heldur undir rauninni, því veiðin hefur orðið meiri en Guðni spáði.

Húsið opnar klukkan 20 og verður first farið yfir ný svæði á söluskrá SVFR. Um kvöldið verður Hjalti Björnsson með erindi um eitt þeirra svæða, Laxá í Dölum, en allra augu munu eflaust beinast að Guðna, fiskifræðingi hjá VMSt sem stígur snemma kvölds í pontu og segir frá líkum á komandi vertíð. Karl Lúðvíksson verður þarna einnig og segir frá nýju syrpunni sinni í “Veitt með vinum” sem byrjað er aðs ýna á sportrás Stöðvar 2.


Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica