Urriðasvæðin í brennidepli

Veiðimaður þreytir vænan urriða við Varastaðahólma í Laxárdal síðla í ágúst. Mynd Jón Eyfjörð.
Fulltrúar Veiðifélags Laxár og Krákár í Suður Þingeyjarsýslu og nokkrir úr stjórn SVFR hafa hist nýverið til að ræða framhald og framtíð samstarfs hópanna um leigu á urriðasvæðunum í Mývatnssveit og Laxárdal. Enn var mikið tap hjá SVFR á rekstri svæðanna.
Guðmundur Stefán Maríasson formaður SVFR staðfesti aðspurður að fundur hefði verið haldinn. Hann var haldinn nyrðra í gær. SVFR hefur nú haft svæðin á sínum snærum í tvö sumur og hefur verið um þrautargöngu að ræða, enda var gengið frá samningum kortér fyrir hrun ef svo mætti að orði komast og bæði vegna hrunsins, og einnig vegna almennrar óánægju fyrri viðskiptavina með hið nýja fyrirkomulag, þá hættu fjölmargir að koma til veiða sem þar höfðu stundað veiðiskap um árabil.

Fiskurinn að ofan, 4 pundari, að nálgast bakkann með kjaftinn fullan af slýi. Mynd Jón Eyfjörð.
Þurfti því að finna mikið til nýjan hóp viðskiptavina sem er ekkert grín á svæði með jafn mörgum dagstöngum í miðri kreppu. Tap var upp á margar milljónir í fyrra þegar svæðin seldust mjög illa og þó að mun betur hafi gengið s.l. sumar, 2010, þá er tapið samt mikið og talið í milljónum en ekki hundrað þúsund köllum.
„Við höfum ekkert gefið út um tap á þessu ári, það bíður ársskýrslu á aðalfundi, en það er ekkert launungarmál að þrátt fyrir að 2010 hafi verið miklu betra en 2009, þá er þessi rekstur ekki viðunandi. Við sátum fund með fulltrúum úr stjórn Veiðifélags Laxár og Krákár í gær, rétt eins og við eigum yfirleitt hefðbundna haustfundi með viðsemjendum okkar, og fórum yfir þessi mál. Menn köstuðu fram hugmyndum og tillögum. Afkoman var rædd og spáð í spilin hvaða möguleikar væru fyrir svæðin. Það er í raun ekki meira um málið að segja, utan að við munum halda áfram að ræða málin, menn héldu til síns heima með eitt og annað til að hugsa um,“ sagði Guðmundur Stefán.
