Veiðidónar teknir við Víkurá

Myndin er frá Teigshyl í Víkurá. Haustið 2008 og þarna er mjög gott vatn í ánni. Mynd gg.
Víkurá í Hrútafirði er lítil viðkvæm á sem getur gefið vel þegar skilyrði eru góð. Þar eru strangar reglur, en nú fyrir skemmstu voru veiðidónar gripnir þar glóðvolgir eftir gróft veiðibrot.
Einar Sigfússon leigutaki árinnar staðfesti þetta í samtali við VoV. Hann sagði að áin hefði verið sein í gang þetta sumarið vegna þurrka, en síðan hafi veiðin tekið við sér um daginn og lax tekið að ganga. „Það voru þarna menn um daginn semaðspurðir létu þokkalega yfir veiðinni. En bændum fannst þeir skila sér eitthvað seint og illa í hús af einni vaktinni og óskuðu þá eftir að skoða í kistu sem var á palli eins veiðibílsins. Þar voru 17 laxar,“ sagði Einar. Í Víkurá má einungis veiða á flugu og hvor dagstöngin (2 í ánni) má drepa einn lax á dag, sem þýðir að tveggja daga holl má í mesta lagi drepa fjóra laxa. Þarna var því farið gróflega yfir strikið.
Það getur verið snúið að treysta veiðimönnum því miður, eins og þetta dæmi sannar. Ritstjóri VoV hefur nokkrum sinnum veitt í Víkurá og hefur fundið bæði mosa úr maðkaboxi á árbakka og óryðgaðan svartan Tóbí af stærstu gerð í einum af bestu hyljunum. Fréttin okkar segir manni þó að eftirlit er virkt við ána og alls ekki gefið að veiðidónar komist upp með iðju sína.
