Velkomin . . .
... hingað á fréttasíðuna. Hér eru þrír undirflokkar:

Eru þau að fá'ann? Ritstjóri þessa vefrits sá um veiðifréttaþáttinn Eru þeir að fá'ann í Morgunblaðinu í rúmlega 26 ár. Er hann hætti þar störfum sl haust voru veiðifréttir í Mogganum lagðar af undir því nafni. Segja má að hér haldi þær áfram, aðeins af meiri þrótti, með meira pláss og tækifæri en nokkru sinni fyrr. Njótið vel og komið sem oftast í heimsókn. Hér verður stöðugt eitthvað nýtt á ferð.
Hér verða margvíslegar fréttir tengdar stangaveiði, t.d. fréttir af leigumálum, verðlagsþróun, nýjungum í tækjum og tólum, uppkaupum netaréttinda, seiðasleppingum, ræktunarátökum o.m.fl.
Fréttaveitan sem hér fer er nokkuð vel skilgreind í nafninu. Hér verður mest að finna efni sem verslanir, heildsalar og stangaveiðifélög bjóða uppá, námskeið, útsölur, tilboð, félagslíf o.þ.h. Njótið vel.
Hér verður afar hröð uppfærsla á nýju efni og mál að fylgjast vandlega með.