votnogveidi_Fors_2009-05
vísindi og rannsóknir

Elliðaárnar: Lítið veiðiálag

29.5.2006

 

11-Ellidaa_Grimur_med_Lax

Grímur Jónsson með lax úr Sjávarfossi 2005. Fossinn og Hraunið voru gjöfulustu veiðistaðirnir. Mynd HÓ.

Við höfum ekki alveg lagt frá okkur Elliðaárskýrslu þeirra Þórólfs, Sigga Guðjóns og Friðþjófs. Í henni er m.a. að finna athyglisverðar tölur og statistík um veiðilag í ánum, stærð göngunnar 2005 svo og aldurssamsetningingu aflans.

Ellidaa_teljari

Fyrst er það gangan sjálf. Teljari sýndi alls 2.397 laxa í fyrra og auk þess veiddist 251 lax neðan teljara. Það kalla menn heildargöngu upp á 2.648 laxa en við það mætti bæta óþekktu tölunni, þ.e.a.s. óveiddir laxar neðan teljara. Einhver góður slatti var af fiski í Teljarastrengnum, en lítið þess utan um haustið. Þorrinn af laxinum farinn upp fyrir.

Teljarinn og kistan gefa mörg svör. Mynd HÓ.

Svo brjóta þeir félagar töluna nokkuð upp, því laxar merktir og sannanlega af eldisuppruna voru 307 og tveggja ára laxar og eldri í teljara 71. Heildarganga náttúrulegra 1 árs laxa var því 2.270.

Heildarveiðin var, eins og oft hefur komið fram, 948 laxar. 110 laxar reyndust vera með uppruna úr seiðasleppingum og 19 til viðbótar voru annað hvort tveggja ára laxar eða laxar að ganga til hrygningar í annað skipti. Meðalþungi þeirra var um 8 pund. Heildarveiði á náttúrulegum 1 árs laxi var því 819 laxar. Alls voru þar af 390 hængar og 558 hrygnur. En þetta gerir veiðiálag upp á 36,1% sem við teljum að þyki ekki mikið, sérstaklega hvað álagstölur úr öðrum ám eru í sumum tilvikum hrikalegar, t.d. í Selá í Vopnafirði.  Þess ber þó að geta, að þetta litla veiðiálag stafar að einhverju leyti af því að veiðitím í Elliðaánum hefur verið styttur, stöngum fækkað og kvóti í veiði minnkaður.






Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica