Þéttleikaháð áhrif voru vandinn

Hofsá hefur gefið eftir Selá og menn velt vöngum yfir ástæðunum, en nú virðast þær liggja fyrir. Mynd Jón Eyfjörð. Neðri myndin er tekin á efra svæði Selár sem hefur verið með stóraukna laxaframleiðslu síðustu árin.
Fiskifræðingar VMSt hafa sent frá sér samantekt þar sem þeir sýna fram á hvers vegna Hofsá hefur dregist aftur úr Selá í veiði síðustu árin, en árnar hafa einmitt verið þekktar fyrir að halda sama dampi í gegnum tíðina. Niðurstaðan er ofsetning seiða eftir þrjú afar góð ár!
Hér á eftir birtum við lokaniðurstöðuna, en athyglisvert er, að þetta er einmitt Það sem ýmsir hafa sagt í gegnum tíðina um möguleg neikvæð áhrif „veiða-sleppa“ fyrirkomulagsins sem mjög hefur verið stundað í báðum ánum síðustu sumrin. Of mikil hrygning leiðir af sér of mörg seiði og baráttan um fæðu og skjól harðnar. Þegar góðæri er nokkur sumur í röð, þá er voðinn vís. En hér kemur þetta:
„Nokkru fyrir aldarmót var farið að sleppa veiddum laxi bæði í Selá og Hofsá, fyrst í smáum stíl en síðustu fimm árin hefur um 70% af veiddum laxi verið sleppt aftur. Það hefur því aukið hrygningu til muna miðað við það sem áður var. Einnig kom tímabil (árin 2003-2005) sem var mjög hagstætt seiðum, bæði jókst þéttleiki seiða og vaxtarhraði til sömu tíðar. Mestur varð þéttleiki seiða í Hofsá og meiri en nokkru sinni fyrr. Þrír seiðaárgangar í röð voru mjög sterkir í Hofsá.
Þegar rakið var í gegnum hreistursýni hvað hefði skilað sér af þessum árgöngum kom í ljós að yfir allt tímabilið var marktækt samhengi á milli mats á tveggja ára seiðum og hvað þau gáfu í veiði síðar meir. En þar skáru tveir árgangar seiða sig verulega úr. Það voru tveir seinni árgangarnir af þeim þremur stóru sem komu í röð (árin 2005-2007 þá tveggja ára seiði). Annar gaf aðeins um helming og hinn gaf einungis þriðjung af því sem vænta mátti.
Þetta var túlkað þannig að þegar þéttleiki og lífþyngd seiðanna var orðinn mjög mikill í Hofsá þá hafi seinni tveir árgangarnir (2006 og 2007) tapað tölunni óeðlilega mikið miðað við önnur ár. Það hafi gerst annað hvort frá því þeir voru metnir stórir að hausti sem tveggja ára seiði þar til að vori þegar þeir áttu að ganga út sem þriggja ára seiði, eða þá að seiðin hafi verið horuð og illa undir sjávardvölina búin og því orðið fyrir meiri afföllum
fyrstu vikurnar í sjó. Þetta eru kallað þéttleikaháð áhrif þ.e. samkeppni milli seiðanna verður mikil bæði um fæðu og skjól sem aftur kemur fram í rýrnandi holdum og auknum afföllum þeirra. Þegar hrygningarstofn er stór, klak tekst vel og góð vaxtarskilyrði eru fyrir hendi hjá seiðunum þá getur ásetningur á búsvæði seiðanna orðið of mikill sem endar með hækkandi dánartölu seiða.“
Lesendur geta séð meira á vef VMSt, www.veidimal.is en þar eru forsendur reifaðar meira og auk þess geta menn og konur lesið þetta enn betur út í línuritum.
