votnogveidi_Fors_2009-05
vísindi og rannsóknir

Vatnsdalsá er greinilega í afar góðu ásigkomulagi

17.5.2010

 

 

 

 

Pétur Pétursson hefur löngum verið ánægður með gang mála í Vatnsdalsánni sinni. Hann hefur vakað yfir V-S fyrirkomulagi veiða þar um árabil og segir útkomuna frábæra. Áin sé fullkomlega sjálfbær og seiðabúskapur með því besta sem sjáist. Nýleg skýrsla VMSt tekur undir þetta og Pétur segir hana vera „frábæra viðurkenningu“.

 Pétur með glæsilegan lax úr VatnsdalsáVið skulum glugga að gamni aðeins í þessa skýrslu, en í „umræðum“ stendur m.a. eftirfarandi:  „Seiðabúskapur Vatnsdalsár hefur verið einstaklega góður síðustu ár. Dreifing um vatnasvæðið hefur verið tiltölulega jöfn bæði hvað varðar einstaka árganga og á milli árganga. Veiða og sleppa fyrirkomulagið virðist hafa þau áhrif að uppeldissvæði á öllu svæðinu eru að nýtast betur, sérstaklega í efri hluta árinnar og hliðarám hennar. Ennfremur virðast nú minni sveiflur í ástandi en áður. Engin merki hafa sést um neikvæð áhrif þessa veiðifyrirkomulags á stofna árinnar heldur þvert á móti. Segja má að veiða og sleppa fyrirkomulagið sé lykilinn að því að byggja aftur upp laxastofna árinnar sem voru í slæmu ásigkomulagi. Þá má einnig segja að Veiðifélag Vatnsdalsár og leigutaki hafi unnið brautryðjendaverk í verndun stórlax, sem fleiri hafa horft til seinni ár, en mjög hefur dregið úr stórlaxagöngum í íslenskar laxveiðiár.“

 Veiðikona með rosalegan bolta úr HnausastrengOg um veiðina í fyrra og horfur 2010 segir: Metgöngur seiða voru úr húnveskum ám vorið 2008 sem skiluðu sér í mikilli veiðiaukningu og í sumum tilvikum metveiði sumarið 2009. Þessar seiðagöngur voru í samræmi við spár okkar og byggðu á rannsóknum ársins 2007. Vatnsdalsá skar sig hins vegar nokkuð úr. Hluti þess stóra gönguseiðaárgangs sem átti að fara til sjávar vorið 2008 og skila sér í smálaxaveiði sumarið 2009 sat eftir og fór ekki út fyrr en ári síðar, vorið 2009. Sú seiðaganga dreifist því á tvö ár. Gönguseiðagöngur voru því einnig nokkuð öflugar vorið 2009 og með því allra besta sem vart var við úr ám á Norðurlandi það ár. Veiðihorfur sumarsins 2010 eru því eftir því góðar í Vatnsdalsá og góðir möguleikar á að veiðin verði með því besta sem sést hefur lengi í ánni. Von er á stórum seiðagöngum úr ánni sumarið 2010 og framtíðin því björt fyrir veiði í Vatnsdalsá."

Frábær sjóbleikjuafli úr Vatnsdalsá

Enn geta menn lent í bleikjuskotum í Vatnsdalnum, en urriðinn er smám saman að yfirtaka svæðið. Myndina tók Einar Falur í fyrra. Ofar eru Pétur Pétursson leigutaki, efri mynd, og erlend veiðikona með rígvænan lax úr Hnausastreng. Báðar myndir af www.vatnsdalsa.is

Lesa má meira um málefnið á vef Péturs og félaga, http://www.vatnsdalsa.is/ en þar er m.a. greint frá því að silungsveiðin í ánni hafi verið vel á fjórða þúsund á síðasta ári sem er nálægt metveiði. Það stingur nokkuð í stúf við margar fréttar hvaðanæva að um dalandi sjóbleikjustofna. Enda er það ekki sjóbleikjan sem heldur uppi þessari miklu silungsveiði, heldur urriði, bæði staðbundinn og sjógenginn. Sjóbleikjuveiðin var í besta falli þokkaleg á köflum, þ.e.a.s. það komu fáein skot. Annars var það urriðinn og nóg af honum. Það hefur kannski komið bleikjunni til hjálpar í Vatnsdalsá, að hrygningarfiskurinn á nokkur sterk athvörf á laxasvæðunum og er því ekki undir miklu veiðiálagi.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica