votnogveidi_Fors_2009-05
vísindi og rannsóknir

Matís og Laxfiskar ehf um Þingvallaurriðann: Stórurriðar mengaðir, þeir smærri hreinir

19.5.2009

urriði úr Þingvallavatni

Boltaurriða úr Þingvallavatni sleppt á ný. Mynd Hilmar Hansson.

Matís og rannsóknafyrirtækið Laxfiskar halda fund til að kynna niðurstöður sameiginlegrar rannsóknar á magni kvikasilfurs í urriða úr Þingvallavatni miðvikudaginn 27.mai í Sjávarútvegshúsinu. Hefst hann klukkan 14. Þar mun koma fram að stóri urriðinn er yfir viðmiðunarmörkum ESB, en....

Jóhannes Sturlaugsson með risaurriða úr Öxará

Í fréttatilkynningu frá Matís og Laxfiskum kemur fram, að rannsóknin hafi haft manneldissjónarmið að leiðarljósi og ”var framkvæmd til að draga upp mynd af magni kvikasilfurs í Þingvallaurriðum með hliðsjón af stærð þeirra og forsögu,” eins og segir í tilkynningunni.

Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum með einn eldgamaln úr Öxarárstofninum. Mynd Brynjar Már Magnússon.

Greint er frá því, að kvikasilfur er mælanlegt í holdi Þingvallaurriða og í sumum tilvikum yfir leyfilegum mörkum Evrópusambandsins fyrir styrk kvikasilfurs í matvælum. Það eru stærri urriðarnir sem mælast svo háir og segir að þegar urriði ”hafi náð ákveðinni stærð” séu umtalsverðar líkur á því að hann innihaldi meira kvikasilfur en viðmiðunarmörk geri ráð fyrir. Einnig kemur fram að ”smærri urrðin sé gegnumsneitt undir þeim mörkum”, eins og það er orðað.

Meira gefa rannsóknaraðilar ekki upp í frétt sinni, en boða til fundar þar sem rannsókninni verður lýst nánar. Má þar gera fastlega ráð fyrir því að fram komi upplýsingar um það hverjar umræddar stærðir á urriðunum eru, enn fremur hvað menn halda um uppruna eitrunarinnar og fleira athyglisvert í málinu. Matís og Laxfiskar bjóða ”hagsmunaaðila og aðra áhugasama” velkomna á fundinn.






Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica