Lengi er von á einum

Þetta er birtingurinn sem um ræðir. Mynd fengin af vef Veiðimálastofnunar, www.veidimal.is
Starfsmenn VMSt á Suðurlandi nældu sér í merkilegan fisk úr afla netabónda við Þjórsá fyrr í sumar. Reyndist þar vera á ferðinni radíómerktur sjóbirtingur sem ekkert hafði spurst til í langan tíma, en hannvar merktur sem gönguseiði 5.júní 2003.
Fiskurinn kom fram í net íÞjórsá 6.júlí síðast liðinn og reyndist vera um 58,2 cm hæng að ræða, 2,4 kg, eða rétt innan við 4 pund. Það eru sem sagt rúmlega fimm ár síðan að fiskurinn var merktur og þá í Kálfá í Gnúpverjahreppi, sem rennur í Þjórsá skammt neðan við Árnes. Þó svo að merkið hafi orðið straumlaust fyrir margt löngu, mátti lesa margt skemmtilegt útúr þeim gögnum sem þar fundust þó, svo og hreistri fisksins. Hann var t.d. gengið fimm sinnum til hafs og til baka og þar af hafði hann tekið þátt í hrygningu fjórum sinnum. En það er meira um þennan merkilega fisk á www.veidimal.is
