Stangaveiðimenn hafa eflaust flestir síðustu árin fylgst með niðursveiflu Eyjafjarðarár, a.m.k. með öðru eyranu eða auganu. Þessi fyrrum besta sjóbleikjuá landsins fór í hraða dýfu, svo mikla að hún var um tíma friðuð og sett í „gjörgæslu“. En nú virðast tímar vera bjartari.
Nokkrir af sérfræðingum VMSt hafa sent frá sér niðurstöður á rannsóknum á fiskistofnum og lífríki Sogsins. Þar virðist hafa verið veitt meira en stofninn þolir og vatnsborðshækkanir hafa valdið seiðum búsyfjum svo eitthvað sé nefnt.
Fiskifræðingar VMSt hafa sent frá sér samantekt þar sem þeir sýna fram á hvers vegna Hofsá hefur dregist aftur úr Selá í veiði síðustu árin, en árnar hafa einmitt verið þekktar fyrir að halda sama dampi í gegnum tíðina.
Frá því var greint fyrir skemmstu að PKD nýrnasýking væri útbreidd í bleikju í Elliðavatni og Vífilstaðavatni. Urriði verður einnig fyrir barðinu, en nú hefur VMSt greint frá því að alls hafi smit fundist í sjö vötnum og tveimur ám.
Pétur Pétursson hefur löngum verið ánægður með gang mála í Vatnsdalsánni sinni.
....OG VÍÐAR