Landsel fjölgar ekki

Landselur í góðu skapi. Mynd er fengin að láni af www.selasetur.is
Selasetur íslands stóð fyrir talningu landsela í fyrsta skipti síðan 2006 á nýliðnu sumri. Með í verkefninu voru m.a. Veiðimálastofnun. Í ljós kom að landselastofninn virðist vera í stöðnun þrátt fyrir síminnkandi veiðar úr honum.
Á vef Selaseturs íslands, www.selasetur.is segir m.a.: „Talningar á fjölda landsela við Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðinn á vegum Selaseturs Íslands. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins. Þetta er tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Ekki hefur þó verið talið síðan árið 2006 og var því mjög brýnt að telja í ár. Talningarnar fóru í ár þannig fram að flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og var fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Talningar fyrri ára miðuðu að því að fljúga aðeins einu sinni yfir ströndina hvert talningarár. Talningin 2011 er því sú viðamesta sem ráðist hefur verið í til þessa.
Að meðaltali sáust um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003. Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn.“
Þetta eru athyglisverðar upplýsingar. Lengi hefur verið talið að landselur geri mikinn usla í stofnum laxa og silunga, en könnun sem gerð var á Norðurlandi fyrir fáum árum leiddi í ljós að mjög lítið var um selbitna laxa og silunga. Samkvæmt þessum tölum Selasetursins virðist stofn landsela á Íslandi vera í einhvers konar stöðnun, hvað sem veldur.
