votnogveidi_Fors_2009-05
lífríkið

Hamförunum alls ekki lokið!

15.8.2010

 

Grafan í Skógá

Unnið við útgröft á Skógá í vor. Mynd Ásgeir Ásmundsson.

Eldgosið er búið, en hvað svo? Hamfarirnar halda áfram. Nú veit enginn hvað verður með Skógá. Gosið í vor hefur skilið eftir sig sviðna jörð og hugsanlegt að áratuga uppræktarstarf fari fyrir lítið. Leigutaki Skógár fær litla hjálp frá sveitarfélaginu þó svo að hann sé með fyrirtæki sitt skráð þar og hafi búið til stóra ferðaþjónustuauðlind.

Skógá flæmist um á öskulaginu

Skógá er illa leikin eftir gosið í jöklinum. Áin er full af ösku og sandi og þó svo að Ásgeir Ásmundsson leigutaki árinnar hafi lagt stórar fúlgur í að grafa út neðri hluta árinnar þá verður áin nánast svört á slæmum dögum, enda eru heiðarlöndin þar efra að kafna í gosösku. Fregnir af góðri sprettu á túnum bænda vegna næringarefna í öskunni koma Skógá að litlu haldi.

Hvað sem mönnum finnst um hafbeitarsleppingar gönguseiða þá er það óumdeilt að Ásgeir hefur búið til eftirsótta laxveiðiá sem hefur verið að gefa hátt í 800 laxa á sumri. Færri komast að en vilja  í ána. Síðast þegar við vissum þá hafði sveitarfélagið ekki lyfta litla putta til að aðstoða Ásgeir á neinn hátt, ekki sett fé í rannsóknir, hreinsun, ekkert. Þvert á móti varð hann þess var rétt fyrir upphaf vertíðar að verið var að sturta ösku af bæjarhlöðum í ána!

Það síðasta sem við heyrðum af Ásgeir var eftirfarandi skeyti sem barst okkur nú í nótt.....látum það flakka og vekja til umhugsunar og vonandi að einhverjir sem málið varðar heyri af þessu:

skógá

Svona hljóðar skeyti sem mér barst áðan, en gæðunum er misskipt. Stærri slepping í Skógá skilar ekki fiski enn, Þetta er farið að verða mjög þreytandi ástand eftir 10 ára þrotlausa vinnu og 8 ára meðlagsgreiðslum með ánni. Náttúran sér um sína en samt er ekki alltaf allt sanngjarnt að manni finnst..Spurning hvort endalokin séu handan við hornið, eða hvort stjórnvöld hafi vilja til að bjarga verðmætum og leggja mér og mínum viðskiptavinum lið í endurreisn eftir þessar hamfarir. Að minnsta kosti var allt bætt í jarðskjálftunum um árið og jafnvel að leitað var eftir hlutum til að bæta.

Skeytið: Sýnir ástandið í Vatnsá: talið vera um 300 laxar í Svörtuloftum..Bullandi göngur á þessum straum..

Thanks to Asgeir's advice for the past 4 yrs: 11 salmon today caught by Seba from Sassicaia in 5 hours. Says river was never this chock full of fish. More to come til early Sep.... Might be best year ever."

Hann er á í SKógá

Skeytið er frá hinum svissneska eiganda Vatnsár sem Ásgeir hefur haldið utan um. Það er ekki okkar hér á VoV að segja mönnum hvernig eigi að forgangsraða hlutum, við flytjum bara fréttir og afþreyingu. En maður verður samt að segja eitthvað stundum: “Hvað er í gangi? Af hverju er manninum ekki rétt hjálparhönd?

Svo kom annað skeyti frá Ásgeiri í nótt:

"Viðlagatrygging greiddi fyrir hreinsun á plönum eftir gos til að fyrirbyggja frekari skemmdir, ég spyr hvaða skemmdir? Eru það ekki skemmdaverk að sturta eitruðum úrgangi í næstu laxveiðiá en á sama tíma og þetta gerðist voru tilmæli frá veiðimálastjóra um að bannað væri að losa í vötnin á svæðinu. Sá aðili sem ekki vill leggja vatnasvæðinu lið var hin sami og stóð að skemmdaverkum. Vissulega er hér aðeins um viðbót að ræða við það sem áin er að flytja á hverri sekúndu, þá er Skógártjörn einnig í hættu en hún er um 1,5 hektari og var farin að láta á sjá þegar ég tók rás framhjá henni í vor. Spurning hvort einhver vilji opna þar öskulaug þar sem túristinn gæti baðað sig úr agnarsmáum öskuflísum."

Einn af lesendum okkar er svo duglegur að senda efni að við viljum gjarnan kalla hann dálkahöfund. Það er Hjálmar Árnason fyrrum pólitíkus. Hann er einn af vildarvinum Skógár og hann fór í sitt árlega holl fyrir skemmstu og leist alls ekki á blikuna. Hér kemur lýsing hans og hugleiðing í kjölfarið. Tökum við VoV-arar heilshugar undir það.

Laxar úr Skógá

Náttúruhamfarir við Skógá

Gosið í Eyjfjallajökli virtist ætlað að verða mikil ógn við bændur og búalið á Suðurlandi (að ekki sé minnst á flugumferð heimsins).  Til allrar hamingju fór betur en á horfðist.  Þannig lítur bara þokkalega út með búskap á Suðurlandi eftir svart útlit í vetur í orðsins fyllstu merkingu.  En nú lítur út fyrir að hamfarirnar gætu lagt 10 ára uppbyggingarstarf í Skógá í rúst.  Rétt um 10 laxar eru komnir á land miðað við um 150 fiska á sama tíma í fyrra.  Hvað veldur?  Margt er í spilunum.  Í fyrsta lagi hafði flóð í Skóga (og Kvernu) þau áhrif að áin breiddi hressilega úr sér á söndunum og varð allt að 3 km breið en aðeins 5 sm djúp.  Ásgeir Ásmundsson, sem hefur af dugnaði og útsjónarsemi byggt upp ævintýri við Skógá, lét grafa rennu þannig að laxinn ætti greiðari leið upp í ána.  Allt kom fyrir ekki.  Í annan stað hefur mikill aur/aska borist niður neð ánni og í rigningum verður Skógafoss svartur.  Miklir hitar hafa einhver áhrif.  Þá hefur þeirri tilgátu verið hreyft að eðli vatnsins í ánni hafi breyst við gosið með þeim afleiðingum að laxinn finni ekki „réttu lyktina“ í ánni sinni og sé því enn að sveima í sjónum.  Töluvert hefur sést við ósinn.

Ljóst er að þarna gætu verið í uppsiglingu miklar náttúruhamfarir þar sem 10 ára uppbyggingarstarf verður lagt í rúst.  Næstu 7-10 dagar munu skera úr um það.  Mikilvægt er að láta ekki þessa vinsælu veiðperlu hverfa af markaði.  Segja má að árlega komi um 400 manns til að njóta veiði í Skógá með tilheyrandi tekjum fyrir samfélagið.  Verði seiðum ekki sleppt að ári má segja að komið sé aftur á byrjunarreit.  Margt áhugagfólk um veiði vill ekki láta það gerast.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica