votnogveidi_Fors_2009-03

lagt íann

Loðmundarfjörður

LOÐMUNDARFJÖRÐUR - 1.4.2005

Veiðimenn eru oft og iðulega staddir austur á fjörðum. Skemmtileg leið sem mætti taka dag í er að skella sér í Loðmundarfjörð. Það er líka hægt að stoppa þar lengur, enda gistiheimili rekið í Stakkahlíð. Það er ekki verra að dvelja þar meira en dagstund, því fallegri og magnaðri staðir eru vandfundnir á Íslandi.
 
GG_058

TIL LANGAVATNS - 2.4.2005

Við erum stödd í Borgarnesi og ökum af stað, stefnum í austur í átt að Norðurárdal, en áður en við erum komin svo langt, beygir afleggjari til vinstri rétt við bæinn Svignaskarð, sem er gamalt og merkt stórbýli. Á skiltinu stendur Langavatn og einnig er þar skilti er vísar til orlofshúsabyggðar BSRB og annað er vísar til veiðihúss SVFR fyrir Gljúfurá. Vegspottinn til veiðihússins greinist svo að segja strax frá þeim afleggjara sem við höfum nú tekið. Er rétt að vera ekkert að aka í hlað veiðihússins nema að við eigum sérstakt erindi þangað.....eins og t.d. til að veiða í þeirri bráðskemmtilegu og fallegu laxveiðiá. Sem þó má muna sinn fífil fegri í aflatölum!
 



Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica