votnogveidi_Fors_2009-02
eitt og annað

Þekktu kennileyti sópað burt

1.2.2012

 

Iðuklettur 2012

Myndin sem við fengum að láni frá www.lax-a.is sýnir það sem eftir stendur af hinum stóra stolta klettastapa sem nefndur hefur verið Iðuklettur. Þetta er bara grjótnabbi hægra megin við miðja mynd. Af jakahrönglinu á báðum bökkum má sjá að eitthvað hefur gengið á!

Klettadrangur sá er einkennt hefur veiðistaðinn Iðu á 3.svæði Stóru Laxár í Hreppum er horfinn og virðist áin hafa hreinlega sópað honum burt í flóðum nýlega. Klettur þessi var engin smásmíði og ekki ofsögum sagt um náttúruöflin og eyðingarmátt þeirra.

Frá þessu er greint á vefsíðu Lax-ár, www.lax-a.is  og þaðan fengum við þessa mynd að láni. Það er sjónarsviptir af stapa þessum. Kannski ekki beint náttúruundur, en svipmikill með afbrigðum og eitt af helstu kennileytum Stóru Laxár. Stapinn stóð neðarlega við veiðistaðinn Iðu sem er fornfrægur veiðistaður í Stóru. Iðan hefur í gegnum tíðina verið einn af bestu veiðistöðum árinnar, en þó verður að segja að hann hafi verið á niðurleið síðustu sumur og að áin hafi búið svo um hnútana sjálf með því að grynnka hann með maðalburði og straumlagsbreytingum. En hver veit nema að flóðið hafi gefið og tekið í senn, skilað aftur veiðistaðnum, en tekið toll í formi klettsins góða? Það kemur í ljós á komandi sumri.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica