votnogveidi_Fors_2009-03
eitt og annað

Aðgát skal höfð í nærveru öngla

25.1.2012

 

öngull í auga 1Nú styttist í næstu vertíð og alla hlakkar til. Í öllum æðibunuganginum er hins vegar rétt á stundum að flýta sér hægt og gæta alls öryggis. Stangaveiði getur nefnilega verið stórhættuleg!

Þessar myndir, sem VoV hnaut um á spjallþráðum veiðimanna á FB segja sína sögu og eru í senn áminning um að gæta varúðar og hvatning til allra veiðimanna að nota hlífðargleraugu við veiðiskap. Margir nota að sjálfsögðu pólaroidgleraugu til að skýla sér fyrir sólargeislum og til að sjá í leiðinni betur ofan í undirdjúpin. Stundum gera slík gleraugu hins vegar takmarkað gagn, annað en að verja augun, og því margt vitlausara en að halda til haga áramótagleraugunum sem verja menn flugeldum. Það er ekkert hallærislegt að nota slíkt. Miklu verra að sleppa því og tapa kannski sjóninni.

öngull í auga 2Við sem stýrum þessum vef og fjölmargir sem við eigum samskipti við höfum séð það margítrekað að menn nota ekki gleraugu við veiðarnar. Það ætti að gera átak í þessum efnum. Og í raun eru það ekki aðeins augun, það þekkja það margir af eigin raun að setja flugu- eða maðköngla á kaf í fingur, lófa eða handarbök. Ritstjóri hefur tvívegis orðið vitni að því að börn álpuðust aftur fyrir fullorðan sem voru um það bil að þeyta spæni út í vatn með þeim krafti að ætla hefði mátt að spónninn ætti að lenda í miðju vatninu. Annað barnið fékk spóninn inn í eyra, hitt fékk öngla á kaf í hnakkarótina. Í bæði skiptin tókst giftusamlega að losa stálið án varanlegra eftirkasta, en maður veit aldrei hvað gerist næst. Þannig að....




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica