eitt og annað
Eitthvað til að ylja sér við
Meðan að það er enn dimmt að mestu og snjóar enn, þá er ekki úr vegi að skella inn stöku U-túbi sem glatt gæti sinni og sál. Þetta hér fundum við á FB-þræði nýverið og smellpassar sem mótvægi við stemminguna í veðrinu þessa daganna.
Hér eru sum sé á ferð náungar sem hafa verið að taka upp efni á Íslandi og við vorum með stuttan stubb frá þeim um daginn líka, sá var frá Laxá í Aðaldal, og þessi stubbur, sem er trailer fyrir lengri mynd, er þaðan einnig. En að því er virðist ofan úr Laxárdal. Þarna eru meðal annarra í broddi fylkingar Bjarni Höskuldsson og Klaus Frimor, auk nokkurra stórra urriða. Skoða gersovel og njótið vel, en myndbandið er efst á þessum hlekki í augnablikinu.... Seasons On The Fly
