votnogveidi_Fors_2009-03
eitt og annað

Magnaðar æfingar við Steinbogann

10.1.2012

 

Með lax á við Steinboga í Jöklu

Þetta er nú ekki mynd frá Ómari, en sýnir veiðisvæðið við Steinbogann í Jöklu. Mynd Jóhanna Hinriksdóttir.

Ómar Ómarsson, stangaveiðimaður og lesandi VoV sendi okkur glaðning af betri sortinni nú í vikunni. Um er að ræða myndskeið frá Steinboganum í Jöklu. Hvílíkt ævintýri hér á ferð.....

Ómar hefur orðið: „Við félagarnir lentum í sérstökum aðstæðum í Steinboganum í Jöklu s.l. sumar þar sem laxinn var óvenju tökuglaður. Báturinn var ekki kominn á sinn stað þannig að við gátum ekki komist á efsta svæðið, þannig að þegar við komum auga á laxinn af klettunum tókum við agnhaldið af Kolskegg þar sem ómögulegt var að landa og köstum á torfuna með meðfylgjandi árangri. Við sjáum eftir því dag að hafa ekki myndað lengur því við misstum af nokkrum skemmtilegum atvikum þar sem laxarnir hreinsuðu sig alveg á eftir flugunni. Góður dagur og munum við eflaust mæta næsta sumar í Jöklu.“

Sjá myndskeiðið hér:   http://www.youtube.com/watch?v=V6HIhRuC1EA  




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica