votnogveidi_Fors_2009-04
eitt og annað

Dægradvöl fyrir komandi vertíð!

28.12.2011

 

Urriði úr VesturáFáeinir dagar eftir af árinu og stutt í næstu vertíð. Það er margt hægt að gera sér til dundurs til að stytta tímann, t.d. að gera vídeo af síðasta sumri og leyfa öðrum að njóta, líkt og Snævarr Örn Georgsson gerði!

Snævarr er kornungur að árum og er svo heppinn að fjölskylda hans á jörð fyrir austan. Snævarr hefur nokrum sinnum sent okkur myndir af urriðum sem hann hefur veitt í ónefndri á fjölskyldunnar, en á landareigninni er einnig gjöfult bleikjuveiðivatn. Snævarr gætir þessara perla eins og sjáöldur augna sinna, veiðir og sleppir og þeir sem fá að skjótast eru bundnir þagnareiði og lúta sömu reglum. En það skiptir ekki máli hvað vatnið heitir, nú eða áin, því lítt þekktir og ótrúlegir veiðimöguleikar eru um land allt, beinlínis hrópandi á menn að leita að sér. Ættu menn að svara því kalli nú þegar veiðileyfi eru enn að hækka! Eða í það minnsta drýgja sumur sín með mögulega stórum ævintýrum á ókunnum og jafnvel lítt snortnum slóðum.

En Snævarr Örn sendi veiðimönnum hátíðargjöf á dögunum, vídeo sem hann hefur sett á Vimeosvæði sitt og gerir glæsilega upp síðasta sumar þar sem hann stundaði ána sína og vatnið líka af kappi. Veiddi marga fiska, bæði urriða og bleikjur, bæði stóra fiska og smærri. Lesendur, geriði svo vel í boði Snævars Arnar Georgssonar:

http://vimeo.com/33829567

 




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica