votnogveidi_Fors_2009-05
eitt og annað

Úr veiðibókum Laxár í Kjós

27.12.2011

 

2011 Kjósaropnun

Frá opnun Laxár í Kjós s.l. sumar, Ólafur Þór Ólafsson að landa vænum laxi.

Það getur verið gaman að garva í statistík. Við vorum að því um daginn með árnefndir SVFR, en að þessu sinni komumst við í samantektir fyrir Laxá í Kjós og Bugðu. Það var Aron Jóhannsson sem tók þetta saman fyrir Hreggnasa, www.hreggnasi.is  leigutaka árinnar, og við fengum leyfi til að kíkja

Það fyrsta sem maður staldrar við, er að áin losaði 1.000 laxa eins og kannski voru litlar horfur  á um tíma, þegar þurrkarnir herjuðu sem harkalegast. En flottur endasprettur kom ánni í alls 1.052 laxa. Þar af átti Laxá 876 laxa og Bugða 176.

2011 einn úr KjósinniMenn töldu sig merkja nokkuð meira af stórlaxi heldur en síðustu árin, en sú aukning var ekki í Bugðu þar sem aðeins 18 laxar af 176 voru svokallaðir stórlaxar, sem eru fiskar frá 70 cm og stærri.

Tveggja ára hrygna úr Laxá s.l. sumar. Mynd gg

Statistíkin í Laxá sjálfri var betri, þar voru 105 slíkir laxar, þeir stærstu alveg upp undir 20 pundin og auk þess sást að minnsta kosti einn risavaxinn lax í ánni.

Þá má einnig sjá vissa breytingu sem orðið hefur á dreifingu afla í Bugðu. Fyrrum var lang mest veiðin í ánni frá Fossi og upp í Ósbreiðu. Nú er það breytt, Golfstraumur er efstur með 44 laxa og Móreyri næst með 35 laxa. Báðir staðir eru neðan við brú. Hinir fyrrum gjöfulu staðir efra, Ósbreiða, Bakkahylur, Selvað, Bugavað og Fossinn eru með þessar tölur, í sömu röð: 11, 13, 8, 10 og 12 laxa.

Þórdís Ólafsdóttir með 8 punda birting úr Laxá i KjósTalað hefur verið um að sjóbirtingurinn sé í lægð í Laxá og veiðitalan gæti staðfest það, aðeins 111 fiskar voru skráðir, en þess ber þó að geta, að aðeins fiskar um 3 pund og uppúr eru skráðir og talsvert er alltaf af smærri fiski.

Stórir birtingar eru alltaf til staðar í Kjósini. Mynd gg.

Ólafur Helgi Ólafsson sagði okkur í það minnsta að þegar á leið hafi allt verið orðið fullt af birtingi. Og raunar laxi líka. Það eru kunnugleg nöfð yfir fengsælustu laxaflugurnar og erum við ekkert að hafa það eftir hér, en athyglisvert að sjá að sjóbitringarnir tóku ótrúlega margar flugutegundir. Sunrey var þó efst með 18 og rauð Frances næst með 16, sem sýnir að sjóbirtingur er hreinn meðafli og menn hafa alltaf ætlað sér lax en ekki birting. Ella væru oftar sjóbirtingsflugur í bókunum og sú eina sem kemur við sögu er Dýrbítur með fjóra fiska.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica