Slóði í ánni!
Það þarf töluvert ímyndunarafl til að kokka upp svona veiðivél! Mynd Hjálmar Árnason.
Menn spyrja sig stundum hvað er í gangi? Menn kaupa veiðileyfi og svo virðist sem að sumir líti svo á að leyfinu fylgi prívat réttur til þess að ná fiski áland, sama hvað tautar og raular og sama hvaða aðferðum er beitt. Hér er pistill frá Hjálmari Árnasyni sem var að koma úr Laxá í Leirársveit.
„Langflestir veiðimenn umgangast árnar af virðingu og hæfilegri lotningu. Gildir það jafnt um náttúruna sjálfa sem og aðra veiðimenn. Enginn er eyland og gildir það jafnt um veiðimenn sem aðra. Því miður eru til þeir veiðimenn sem ljúka vaktinni með því að skyggna hylinn af bakkanum, vaða hann eða annað ámóta. Í þessu felst lítil tillitssemi gagnvart þeim veiðimönnum sem eiga að taka við hylnum. Ekki mjög líklegt að sú vaktin gefi mikið fyrir tillitsleysi þeirra sem yfirgáfu veiðistað með þessum bægslaganginum.
Sama á við um veiðarfæri. Svo virðist sem einhverjir veiðimenn sjái sig knúna til að brjóta reglur og fara bara eftir sínu höfði – hvað sem tautar og raular. Þannig virðist einhver „snillingur“ ekki hafa náð að setja í fiska nýlega í Laxá í Leir. Líklegast séð fiska í Laxfossi en þeir ekki viljað gína við agni hans. Og hvað er þá ráðið hjá þessum snillingi? Myndin sýnir það svo ekki verður um villst. Hann hefur búið sér til einhvern undra slóða, samsettan úr straumsökku, maðkaöngli, nokkrum gerðum af flugum, túpum og stórri þríkrækju!!!!! Ekki hefur þessi búnaður dugað honum því veiðimaður dró ódáminn upp úr hylnum í morgun enda varla hægt að komast hjá því að setja í slíkan slóða. Við viljum helst vera laus við kappa sem svona haga sér í viðkvæmum veiðiám og gera lítið annað en spilla fyrir eigin veiði og annarra.“
Svo mörg voru þau orð Hjálmars og ekki laust við að menn velti fyrir sér hvað sé í gangi uppi í haus þeirra sem að setja svona veiðitól saman. Þetta er nefnilega magnað apparat að mörgu leyti þó að það sé ólíklegt til að ná fiski nema með ólögmætum hætti, þ.e.a.s. með húkki. Kannski að hugvitsmaðurinn hafi hugsað sem svo: Ef að silungsveiðimenn mega nota dropper, af hverju má ég þá ekki hengja margvíslega öngla á tauminn hjá mér? Eða: Stendur ekki í reglum að aðeins sé leyfilegt að nota flugu og maðk? Ég er bara að gera það!!!! En að öllu gríni slepptu, þá er svona lagað alls ekki óalgengt. Á hverju sumri finna menn veiðarfæri í ám eða á bökkum þeirra sem eru bönnuð í viðkomandi ám. Það er eins og reglur komi sumum veiðimönnum ekkert við og þeir leynast innanum okkur hina sem að virða reglurnar. Spilla þar orðspori okkar og stangaveiðinnar í heild sinni.
