Töfrar Hafralónsár

Glæsileg tilþrif. Þessar myndir og fleiri: www.designhouseone.com Einnig má skoða slóðirnar: www.designhouseone.com/flyfishing.html og http://www.designhouseone.com/
Pálmi Einarsson hjá Designhouseone leyfði okkur að birta á dögunum alveg hreint ótrúlega magnaðar myndir sem hann tók við Laxá í Kjós fyrr í sumar. Síðan skrapp hann í Hafralónsá og enn fáum við myndapakka. Sjón er sögu ríkari.

Veiðikofinn á töfrandi sumarnóttu.

Veiðimaður búinn að leggja fluguna á réttan stað!
„Ég var í Hafralónsá að veiða fyrir skemmstu og taka myndir af ánni, og þvílík perla,“ skrifaði Pálmi í skeyti til okkar. Sumarið hefur verið gott í Þistilfirðinum þegar á heildina er litið, árnar allar í þeirri sveit byrjuðu afburða vel og var mikið af stórum laxi. Síðna fór smálaxinn að koma, en hefði mátt vera meira af honum eins og víðar á norðanverðu landinu. Síðan hefur úrkomuleysi einnig sett svip sinn á veiðina, sem þó hefur verið á heildina litið mjög góð.

Hafralónsá tekin á tíma.

Margir veiðistaða Hafralónsár eru stórir og magnþrungnir.
Árnar í Þistilfirði eru magnaðar allar með tölu, en Sandá er þeirra vatnsmest. Er hún aðeins meiri en Hafralónsá í þeim efnum. Allar eru þær langar og eiga upptök sín langt inni í hálendinu. Allar enda þær sem laxveiðiár með ólaxgengum fossi, en í tilviki Hafralónsár er þetta allt saman tilkomumest, því í gljúfrinu sem efsta foss er þar að finna er fjöldi fossa og mikil náttúruperla þar á ferð. Heitir gljúfrið hinu magnþrungna nafni Dimmugljúfur.

Veiðileg breiða neðan við foss.
Þistilfjarðarnar voru til skamms tíma nokkuð út úr og það gekk jafnvel erfiðlega að selja í þær sumar vegna fjarlægðar frá suðvesturhorninu. Þetta átti þó ekki við um Sandá sem lengi hefur haft sama hóp leigutaka undir nafninu Þistlar. Hölkná var lengi á hendi Svisslendinga, og sömu sögu er að segja um Hafralónsá. Nú eru þessar ár allar í höndum innlenndra leigutaka og óhætt að segja að þær hafi verið uppgötvaðar og sjaldan heyrist að það sé svo langt til Þistilfjarðar. Miklu oftar talað um hversu magnaðar laxveiðiár þær eru.
Pálma þökkum við fyrir birtingarleyfið og bendum lesendum á, að á vefsíðum sínum hýsir hann fjölda magnaðra ljósmynda af bökkum vatnanna. Þannig séð er þessi skoðun á Hafralónsá sem hér birtist lítið annað en lítið sýnishorn.
