votnogveidi_Fors_2009-05
eitt og annað

Hvert stefndi sá stóri?

4.8.2010

 

Laugardælir

Mynd frá Laugardælum 2005. Mynd gg.

Fregnir hafa borist um að 34 punda lax hafi veiðst í net fyrir landi Laugardæla í Ölfusá fyrir skemmstu. Sorgleg örlög það, en fyrir fáum árum voru Laugardælir ein af jörðunum þar sem netin voru tekin upp og reyna átti að stofna til stangarveiða.

Laugardælir eru frægastir í dag fyrir að vera hinsta hvíla Bobby Fischer skákmeistara og sérvitrings, en menn spyrja sig eflaust í hvaða á sá stóri stefndi. Vísbending um það gæti legið í legu Laugardæla. Laugardælir eru bæjarþyrping og kirkjustaður á austurbakka Ölfusár rétt ofan við Selfoss. Liggur við að bæjarþyrpingin snerti Selfoss. Laugardælavatn er þekkt silungsvatn á landareigninni og úr því rennur stæðilegasti lækur til Ölfusár. Að hluta til er veiðisvæðið gegnt veiðisvæðum Hellis og Fossness þar sem Stangaveiðifélag Selfoss hefur náð frábærum árangri við stangaveiði. Í ljósi þess er umhugsunarefni hvers vegna ekki tókst að gera Laugardæli að stangaveiðisvæði.

En algengt er að talið sé að lax sem gengur upp að austanverðu stefni í Hvítá og þar með í Brúará, Iðu og Stóru Laxá. Lax sem gengur upp að vestan ætli sér í Sogið. Sé sú kenning rétt þá hefur sá stóri að líkindum ætlað á æskustöðvarnar í Brúará eða Stóru Laxá. Mest af laxinum á Iðu endar uppi í Stóru Laxá fyrr eða síðar. En hvor áin? Og má útiloka Tungufljót þar sem Lax-á hefur verið með stórfelldar hafbeitarsleppingar? Þar veiddust yfir 20 punda laxar í fyrra. Miðað við uppgang “tveggja ára” laxa og stórlaxa í Stóru Laxá í fyrra og hitteðfyrra er freistandi að hugsa sér að þangað hafi förinni verið heitið. En við því mun ekki fast svar.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica