votnogveidi_Fors_2009-03
eitt og annað

Magnaðar myndir úr Kjós

16.7.2010

 Laxinn stekkur í Kjósinni

Myndirnar:  ©www.designhouseone.com Palmi Einarsson 2010Einnig má skoða slóðirnar: www.designhouseone.com/flyfishing.html og http://www.designhouseone.com/

Við fengum póst frá Pálma Einarssyni ljósmyndara m.m. og hann bauð okkur birtingarleyfi á nokkrum myndum sem hann tók á bökkum Laxár í Kjós fyrir skemmstu. Þegar þið, lesendur góðir, skoðið myndirnar, þá sjáið þið að það var ekki hægt að hafna svo góðu boði.

Hann er á í Kvíslafossi

Lax hefur tekið og fer um brotið í loftköstum.

Lax á lofti í Kjósinni

Glæsileg tilþrif.....

Laxinn stekkur

...og ekki síðri hjá honum þessum.

Pálmi er veiðimaður af lífi og sál og sérlega liðtækur með myndavél að auki. Það er upplagt fyrir lesendur að kíkja á síðurnar hans, þar er fleira skemmtilegt að finna sem kitlar veiðidelluna. Smella má á slóðirnar sem sjá má hér fyrir ofan. 

Kvíslafoss kvöldsól

Kvíslafoss tekinn á tíma í magnaðri birtu kvöldsólarinnar.

En hér eru það myndirnar sem eiga að fá að njóta sín, en skal áréttað að myndirnar eru teknar við Kvíslafoss í Laxá í Kjós. Þar hefur verið mikið sjónarspil allra síðustu vikurnar, allir strengir og allar holur frá Laxfossi og niður í sjó fullar af laxi og fiskur á lofti um allt.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica