votnogveidi_Fors_2009-05
eitt og annað

Árni vill breytingar í Blöndu

9.7.2010

 

EF_012

Árni Baldursson gerir sig klárann. Mynd Einar Falur.

Umræðan að undanförnu um stórlaxadráp versus stórlaxavernd heldur nú áfram á vefsíðu Lax-ár, þar sem Árni Baldursson boðar að hann muni leggja til við Veiðifélag Blöndu að maðkveiði verði bönnuð og öllum laxi frá 70 cm verði sleppt.

Óþarfi er að eyða miklu plássi í upprifjun, en umræðan fór á flug eftir að eitthvað var drepið af stórlaxi í opnunarholli Blöndu í byrjun júní. Ekki er bann við stórlaxadrápi í Blöndu og hefur komið fram að skiptar skoðanir eru um styrk þess stofns í ánni. Þessi umræða í heild sinni snýst þó ekki um stórlaxadráp í Blöndu eina og sér heldur stórlaxavernd í landinu þar sem tölur yfir veidda stórlaxa hafa lækkað ískyggilega víðast hvar. Það hefur leitt af sér bann á drápi stórlaxa með viðmiðun 70 cm í fjölda áa, eða banni við drápi á öllum laxi í stöku á. En það hefur enn fremur leitt af sér bann við maðkveiði þar sem skorðurnar hafa verið settar og það er ekki síður umdeilt þar sem mikill fjöldi veiðimanna vill gjarnan nota blandað agn.

13 Best að hafa hraðann á þegar vel gefur!

"Tveggja ára" lax í háfnum. Mynd Guðmundur Heiðar Guðmundsson.

En Árna er umhugað um að sýna verndunarsjónarmiðunum stuðning, enda auglýsir fyrirtæki  hans á forsíðu heimasíðunnar, að Lax-á sleppi stórlaxi. Í hugleiðingu á síðunni, http://www.lax-a.is/  segir Árni m.a. eftirfarandi:

„Eina úrræðið í Blöndu til verndunar stórlaxinum er að banna maðkveiði alfarið, eingöngu leyfð veiði á flugu og krefjast þess að öllum laxi yfir 70cm verði sleppt, ég er sammála að stórlaxinn skuli njóta vafans ef þetta er rétt ákvörðun (sem ég held að sé sannarlega rétt). Ég mun leggja þetta undir Veiðifélag Blöndu, vonandi til samþykktar. Ég treysti því að með þessari ákvörðun, verði hún samþykkt, vegi hún mjög þungt á vogarskálarnar til verndunar stórlaxi á Íslandi.  Þá er bara eitt eftir ... netaveiði má ekki vera heimil á laxi á Íslandi fyrir 20 Júlí ár hvert til verndunar Stórlaxinum okkar.... VMST?“

Þetta er djarflegt spor hjá Árna, því rík hefði er fyrir maðkveiði í Blöndu og eins og Þórarinn tannlæknir benti á í andsvari sínu við „ákalli“ VMSt á dögunum, að helmingur af aðal veiðisvæði hins gjöfula svæðis nr.1 í ánni er vart hagað fyrir annað en maðkveiði. Menn sem telja sig þekkja Blöndu vel af áratuga reynslu telja ástand stórlaxins í ánni mjög gott og segja ána verja sig vel með lituðu vatni, yfirfalli frá virkjun uppúr miðju sumri og löngu og umfangsmiklu vatnasvæði. Allt þetta leiði af sér lítið veiðiálag þegar á heildina sé litið.

10 Ævintýrið í Blöndu ætlaði hreinlega engan endi að taka.

Boltafiskur þreyttur í Blöndu. Mynd Guðmundur Heiðar Guðmundsson.

Fallist Blöndubændur á þetta má með sanni fullyrða að þetta er ekki minna skref heldur en þegar landeigendur við Laxá í Aðaldal samþykktu að banna maðkveiðar neðan við Æðarfossa. En eins og með svo mörg önnur álitamál og umdeild, margir munu kætast, en aðrir ekki.

Og vert er að taka undir lokaorð Árna, að þeir sem hafa einhvern þunga snúi sér næst að hugsanlega enn stærra máli og það er netaveiðin í jökulám á Íslandi. Þarna er auðvitað fyrst og fremst átt við Ölfusá og Hvítá í Árnessýslu. Einkum þó Hvítá, því mörg neta Ölfusár hafa verið keypt upp og má glöggt sjá árangurinn af því í stórauknum göngum í Sogið síðustu sumur. En mok hefur verið í öll þau net sem enn liggja og ekki gerður greinarmunur á stærð þeirra laxa sem þar geyspa golunni.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica