votnogveidi_Fors_2009-04
eitt og annað

Sogið að fyllast af laxi?

7.6.2010

 

Kastað á Neðra Horn í Sogi.

Á Neðra Horni í Soginu. Mynd: Veiðifélagið Hattur.

Það er alvanalegt að menn sjái fyrstu laxana undir lok mai og fyrstu daga júní, en það sem menn hafa séð að undanförnu er ekki líkt neinu sem menn muna frá seinni árum. Lax út um allt og sums staðar fullt af honum. Meðal annars í Soginu.

Við getum vísað í frásögn Hjálmars Árnasonar frá Flóku og Laxá í Leirársveit hér að neðan og rifja upp að við höfum verið með fréttir um laxa í Elliðaánum, Korpu, Laxá í Kjós og Miðfjarðará. Við þennan lista má síðan bæta Langá og Hítará (og eflaust fullt af öðrum ám) og síðan tala tölurnar sínu málu um Blöndu og raunar Norðurá líka þar sem menn voru á einu máli um að meira hefur ekki sést af laxi svo snemma í mörg ár.

Þeir sem opnuðu Blöndu stoppuðu við Vesturá í Miðfirði á leið sinni á föstudagskvöldið. Töldu tíu laxa í Kistufossi. Nokkrum dögum fyrr sá leigutakinn vel á annan tug laxa á ýmsum stöðum.

 Hvað er að gerast austur í Sogi?

En það er kannski það sem við vorum að heyra frá Soginu sem vekur hvað mesta undrun, því sannarlega er Sogið ein af hreinustu síðsumarsám landsins og yfirleitt bara að veiðast laxar á stangli í júní. Við heyrðum af manni sem sá laxa í Þrastarlundi um helgina. Stoppaði þar stutt en nógu lengi til að sjá lax stökkva í þrígang. Sömu sögu að segja af Torfastöðum og Bíldsfelli. Laxar að stökkva. Og á Tannastaðatanga sýndu laxar sig úti í skilunum og einnig nærri landi neðst á klappartanganum. Voru þar fiskar hátt í 20 pundin, en allt annað sem sýndi sig var vænn tveggja ára fiskur.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica