votnogveidi_Fors_2009-03
eitt og annað

Laxinn að raða sér í árnar

7.6.2010

 

Floka-07-2009-A-Johann_Ragnarsson

Frá Flóku. Þessi mynd er frá Jóhanni Ragnarssyni

Við höfuð greint frá því að laxinn hefur gengið snemma í ár og opnunartölur í Blöndu og Norðurá staðfesta það. Hér er meira af sama meiði, Flóka, Laxá í Leir o.fl.

Eins og svo oft áður, fengum við skemmtilegan póst frá Hjálmari Árnasyni, einum af hollvinum VoV. Hann er mikill aðdáandi Laxár í Leir og Flóku og hann gat ekki á sér setið undir öllum þessum fréttum af snemmgengnum löxum og fór í bíltúr...Hjálmar hefur orðið:

„Þakka ykkur enn og aftur fréttir af gangi mála.  Spennan vex með hverri frétt af nýrri á sem „dettur“ inn.  Að sama skapi vex óþolið og tilhlökkunin í fyrstu ferð sumarsins.  Löngu búið að fara nokkrum sinnum yfir veiðigræjur, fá flugurnar frá dr. Jónasi, yfirfara línur, tauma og allan búnað.  Allt til reiðu en óþægilega langt í fyrsta túr sem verður að vanda í frú Flóku í Borgarfirði í lok þessa mánaðar.  Til að lina þjáningarnar og slá á óþolið ákvað ég að skreppa í Borgarfjörðinn í morgun(sunnudag) – ekki til að veiða heldur kanna hvort hann væri kominn í Flóku sem verður reyndar ekki opnuð fyrr en eftir tæpar tvær vikur.  Fékk í lið með mér annan sjúkling, Árna Geir Pálsson.

Byrjuðum á að kíkja í Leirársveitina enda Laxá í Leir. ein af hinum yndislegri.  Brá reyndar við vatnsleysið – sjaldan séð þessa elsku jafn rislága.  Á hefðbundnum stað (í vikinu á móts við steininn) lá einn nýgenginn og beið greinilega eftir félögum sínum – pollrólegur í brakandi blíðunni.  Ókum inn Svínadalinn, kíktum á Miðfellsfljótið, Eyrafoss og Breiðuna – bara ti lað auka væntumþykjuna fyriur þessari dásamlegu veiðiá.  Haustið verður skemmtilegt að vanda.

Og komum svo að frú Flóku.  Beint í gljúfrið, á pallinn yfir „flata steininum“ og sjá  -  hann er mættur.  Á hefðbundnum stað, móts við þann flata tifaði sporður, skömmu síðar renndu tveir sér upp rennuna og lögðust, enn einn í holunni við útfallið hjá flata.  Á Pokabreiðu mátti greina fyrst einn, svo annan og um síðir höfðum við barið augum allt að 10 fiska á Breiðunni og Gljúfrinu.  Enginn í Hundsfossi, líklegast allir undir fryssinu, en einn spegilfagur í rennunni ofan Rangs.  Flóka tilbúin að taka á móti veiðimönnum.  Veit ekki hvort verðin varð til að róa hugann....fjandi langt í fyrsta túr.“

Áskorun...

Takk fyrir þetta Hjálmar og viljum við gjarnan benda á að þetta er gapandi dæmi um hversu góður vefurinn okkar getur verið þegar lesendur okkar sinna honum. Endilega sendið okkur efni kæru lesendur.  




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica