votnogveidi_Fors_2009-05
eitt og annað

Bestu veiðistaðirnir: Breiðan og Langhylur?

20.1.2010

 

Við vorum með nokkrar greinar fyrir hátíðir þar sem við veltum upp hverjir væru gjöfulustu veiðistaðirnir. Voru margir nefndir, en við vorum eiginlega stopp eftir nokkrar pælingar þar sem menn höfðu ekki lengur veiðibækur í höndunum. Við erum þó enn með vangaveltur í höndunum um Breiðuna í Tungufljóti og hinn gamalfræga Langhyl í Laxá á Ásum.

 Afli úr TungufljótiÞað var lesandi okkar, Róbert Árni Haraldsson sem veiðir í Tungufljóti, sem vakti athygli okkar á Breiðunni í Tungufljóti í Árnessýslu, en sem kunnugt er hafa þeir Lax-ár menn og konur breytt þeirri á í stórveiðiá með gönguseiðasleppingum.

Ungur sonur Róberts með hluta af veiðinni í seinni túrnum.

Veiðin þar 2009 var talsvert lakari heldur en 2008 en allgóð samt, alls var skráður 1.151 lax. Róbert sendi okkur þennan pistil:

“Mig langaði að senda inn línu vegna umræðunnar um bestu veiðistaðina þ.e.a.s. fjölda veiddra laxa. Þó ég hafi enga nákvæma tölu (eflaust hefur enginn hana), þá myndi ég áætla að fjöldi veiddra laxa á Breiðunni í Tungufljóti í Biskupstungu hafi verið hátt í 1000 laxar.Samkvæmt Lax-á veiddist 1151 lax í Tungufljótinu og það má alveg áætla að Breiðan hafi gefið vel yfir helming þessara laxa, þar sem Breiðan var að gefa mun betur enn svæðið við fossinn Faxa.

Langhylur í Laxá á Ásum

Við Langhyl í logni. Mynd Theodór Erlingsson.

Og nú er ég bara að tala um vestur-bakkann. Það hefur ekki verið minna veitt af eystri bakkanum, þar sem allt agn var leyfilegt þar (förum ekki útí þá sálma hér). Enn samkvæmt þessum pælingum mínum, má áætla að Breiðan hafi gefið vel á 1000 laxa s.l. sumar. Fór tvisvar í Tungufljótið s.l. sumar og veiddi vel í bæði skiptin. Hlutföllin hjá mér voru 17 laxar á Breiðunni og 9 við Faxa. Sonur minn 5 ára fékk Maríulaxinn sinn þar. Læt fylgja mynd af honum með hluta aflans í einni ferðinni.

Theodór Erlingsson benti okkur á Langhyl í Laxá á Ásum, en veiðin í Laxá var afar góð á nýliðnu sumri, 1.142 laxar á aðeins tvær stangir. Langhylur var mikil verstöð á gullárum Laxár þegar veiðin fór mest upp í 1.800 laxa. Síðasta sumar var í áttina við gömlu stórveiðiárin og telur Theodór að metveiði hafi verið í Langhyl 2009. Hanne r ekki með töluna klára, en telur að hún geti slagað í 400 laxa.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica