Hestá í Önundarfirði: Ný laxveiðiá í flóruna
Efsti veiðistaðurinn neðan við foss í fallegu gljúfri. Myndir Gunnar Sk.Sæmundsson.
Ný laxveiðiá hefur bæst í flóruna hér á landi, Hestá í Önundarfirði, sem er í 15 mínútna akstursfæri frá Ísafirði. Þar hefur gönguseiðum verið sleppt síðustu ár og gengu fyrstu laxarnir í ána sumarið 2008.
Það er Gunnar Skagfjörð Sæmundsson fiskeldisfræðingur á Ísafirði sem ber hitann og þungann af verkefninu og segir hann þegar komna góða reynslu af veiði í ánni.
Veiðimaður búinn að kasta flugunni á fallega breiðu.....
....og stuttu seinna er hann búinn að setja í lax á keimlíkum veiðistað skammt undan.
Hestá rennur niður Hestdal og fram hjá bænum Hóli og til sjávar í Vöðin sem eru innst í Önundarfirði. Veiðisvæði árinnar er um það bil 6 kílómetrar og að minnsta kosti 30 fallegir veiðistaðir samkvæmt upplýsingum frá Gunnari. Af myndunum sem Gunnar sendi okkur má ráða, að hér er um dæmigerða Vestfirska á að ræða, en fyrir þá sem ekki þekkja, þá er umhverfi á kjálkanum magnað, djúpir dalir, oft kjarri vaxnir og fallhraðar ár. En hvað segir Gunnar um verkefnið:
Búið að setja í lax í fallegum streng ofanvert í ánni.
Fallegt umhverfi við Hestá.
„Markvisst ræktunarstarf hófst í Hestá árið 2007 með það að markmiði að gera Hestá að góðri laxveiðiá. Tvær stangir verða leyfðar í ánni í sumar og veitt fjóra daga í viku og hvílt í þrjá daga. Það er komin nokkur reynsla á veiðar í Hestá, þar sem fyrstu laxarnir gengu í ána sumarið 2008. Tilrauna og klakveiðar voru stundaðar síðsumars 2008 og 2009 sem gengu bara nokkuð vel, fiskurinn dreifir sér vel um ána og göngur að koma inn frá miðjum júlí og til loka september. Bæði 2008 og 2009 voru veiddir 25 laxar í klak og þess gætt að það væri lax eftir í ánni til náttúrulegrar hrygningar. 70 til 100 laxar ættu að veiðast í ánni nú í sumar samkvæmt veiðireynslu 2008 og 2009 og stærðar seiðasleppingar 2009. Stærsti laxinn sem veiddist í sumar var 12 pund.“
Hilmar Pálsson búinn að setja í fallegan fisk....
Hestá hentar ákaflega vel til fluguveiða, að sögn Gunnars, og einnig eru skemmtilegir staðir þar sem maðkurinn fer vel. Enginn kvóti verður á komandi sumri, „menn bara veiða í soðið eða veiða og sleppa, allt eftir því sem hentar hverjum og einum,“ sagði Gunnar og bætti við: „Hins vegar geta veiðimenn tekið þátt í nokkurs konar happdrætti ef þeir gefa fisk í klak. Það verða búr við ána þar sem menn geta gefið fisk í klak þar sem veiðin byggir á seiðasleppingum meðan verið er að rækta hana upp, það er þó engin skylda. Í lok veiðitímabilsins verður dregið úr nöfnum þeirra sem gáfu fisk í klakið og fær þá einhver heppinn dag í ánni sumarið á eftir.“
....og hér er hann kominn á land.
Sem fyrr segir, er um 15 mínútna akstur frá Ísafirði að Hestá. Ekkert eiginlegt veiðihús er við ána enn sem komið er, en aðstaða fyrir veiðimenn verður hjá ferðaþjónustunni Kirkjubóli í Korpudal sem er stutt frá ánni, þar er líka hægt að fá gistingu ef fólk vill. Veiðitíminn hefst 1.ágúst og stendur til 30.september og er fyrirkomulag veiða með þeim hætti að veitt er fjóra daga í viku, en mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er áin hvíld. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Skagfjörð Sæmundsson á Ísafirði.
