votnogveidi_Fors_2009-02
eitt og annað

Rangárflúðir, já einmitt og Ægissíðufoss og allir hinir

23.12.2009

 

 Rangárflúðir

Það var eins og okkur grunaði, það skákar enginn veiðistaður Rangárflúðum í beinhörðum tölum. Mynd Heimir Óskarsson.

Það var eins og okkur grunaði, þegar við gátum rýnt í tölur úr Rangárflúðum þá sprungu allir skalar. Reyndar var topp-tíu listinn í Ytri Rangá metsumarið í fyrra þegar 14.315 laxar komu á land þesse fnis að hann er varla samanburðarhæfur við aðrar ár, nema mögulega eystri systurina í algeru toppári. En Rangárnar eru auðvitað sér á báti í laxveiðiflórunni.

Athugið lesendur góðir, að þær tölur sem hér birtast eru ekki frá nýliðnu sumri heldur metsumrinu 2008. Þær hafa verið eitthvað lægri síðast liðið sumar, en samt án nokkurs vafa ósambærilegar við aðrar ár. Það var lesandi Sigurður Garðarsson sem benti okkur á að agn.is birti þessar tölur haustið 2008.

1 Rangárflúðir 2100 laxar

2 Ægisíðufoss 1700 laxar

3 Klöppin 1200 Laxar

4 Kvíslapollar 1150 Laxar

5 Djúpós 900 Laxar

6 Hellisey 870 Laxar

7 Tjarnabreiða 816 Laxar

8 Gutlfoss 600 Laxar

9 Gunnugilsbreiða 600 Laxar

10 Staurinn 560 Laxar

Ægissíðufoss

Ægissíðufoss og svæðið þar niður af er fádæma gjöfult. Mynd Stefán Sigurðsson.

Sem sagt, einmitt það. Svona geta þá tölurnar orðið í sleppitjarnaránum og ekki að undra þó að fjölmargir laxveiðimenn leggi lag sitt við þær. En eins og einn góður lesandi benti á, þá er veiðitími lengri í þeim ám en í öðrum ám og stundum er um stóra veiðistaði að ræða sem veiddir eru gjarnan og oft með tveimru stöngum. Sjálfsagt að líta til þess, en í aðalatriðum erum við bara spenntir fyrir tölum í þessum pælingum vorum.

Nú langar okkur í fleiri tölur. Breiðan/Damurinn í Blöndu hlýtur að vera með ótrúlega tölu, sömuleiðis Faxabletturinn í Tungufljóti hinu vestara. Okkur hefur einnig verið bent á Langhyl í Laxá á Ásum sem tók að sögn aftur við sér síðasta sumar. Vonandi sjáum við fleiri tölur í þessum efnum frá lesendum okkar á næstu dögum.




Skoða gamlar færslur


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica