Bestu veiðistaðirnir: Laxapollur í Fitjá

Annar laxanna sem Jóhann nefnir í skeytinu, Laxapollur í baksýn.
Hér er meira um “bestu” veiðistaðina, en við höfum aðeins verið að tína þá til síðustu daga, þessa hylji, sem sumir eru ekki ýkja stórir eða miklir, en gefa eigi að síður hundruð laxa á vertíð. Lesandi okkar, Jóhann G. Hermannsson vakti athygli okkar á Laxapolli í Fitjá.
Skeytið frá Jóhanni hljóðaði svona: “Las skýrslu frá honum Ragnari á Bakka þar sem kom fram að Laxapollur í Fitja hafi gefið 215 laxa síðasta sumar.Sendi með tvær myndir frá síðasta sumri af hængum sem fengust í Laxapolli og var annar settur í klakkassa en hinum sleppt.”
Laxapollur er frá gamalli tíð magnaður veiðistaður, en sem kunnugt er, þá er Fitjá hliðará Víðidalsár sem var aðeins örfáum löxum frá metveiði á síðasta sumri. Þetta er þeim mun athyglisverðari veiði, að Fitjá er alls ekki vatnsmikil á og Laxapollur tiltölulega nettur eftir því. Að það veiðist 215 laxar í einum og sama hylnum í jafn nettri veiðiá og Fitjá er sannarlega magnað.

Seinni laxinn, birtu greinilega farið að bregða og flassið komið á myndavélina.
Við höfum nefnt það í þessum umfjöllunum um stórveiðistaði að við teljum að Rangárflúðir eigi vinninginn. Ekki vitum við hvað þær gáfu s.l. sumar eða í metveiðinni í fyrra, en okkur rekur minni til að þar hafi veiðst eitthvað um 700 laxar eitt sumarið. Ef að líkum lætur þá hefur tala síðustu tveggja sumra verið enn hærri og væri gaman ef einhver sem lúrði á tölunum myndi senda okkur þær. Einn sem lét í sér heyra nefndi að það skipti máli að vertíðin er lengri í Rangánum og það sé kannski veitt að jafnaði á fleiri en eina stöng í veiðistaðnum. Það er vissulega rétt, staðurinn er stór og stundum standa þar tveir í einu. En við erum aðeins að hugsa um veiðitölur.
Svo var líka ágæt ábending sem við fengum frá lesanda, Þorsteini Geirssyni, sem taldi að bestu veiðistaðirnir væru mun fremur þeir sem höfðuðu sérstaklega til einstakra veiðimanna. Nefndi hann fyrir sitt leyti Búbót í Vatnsdalsá og ef sá póllinn væri tekinn í hæðinni þá myndu nöfn nefndra veiðistaða eflaust vera jafn mörg, eða fleiri heldur en þeir sem tjáðu sig. Ritstjóra dettur t.d. strax í hug Káranesfljót í Laxá í Kjós og Syðri Hólmi í Tungufljóti eystra. Eða Oddahylur í Gljúfurá. Eða Grjóthylur í Miðfjarðará. Eða Spegillinn í Stekknum. Eða, eða, eða…..
En vonandi fáum við fleiri skeyti frá lesendum með tölum og myndum “bestu” veiðistaðanna.
