Miðfellsfljót í efsta flokki
Miðfellsfljót í Laxá í Leir. Mynd LKI.
Vangaveltur okkar um „besta veiðistaðinn“ hafa vakið athygli. Við höfum tölur yfir Hnausa í Vatnsdalsá, og óskum eftir tölum víðar að ef menn hafa þær haldbærar. Sérstakleag höfum við áhuga á tölum úr Rangárflúðum. En það eru fleiri rosalega góðir staðir...
Til dæmis fengum við póst frá leigutökum Laxár í Leirársveit. Hann var svona, stuttur og laggóður: “Hvað eru margar stangir á Rangárflúðum í einu og hvað margir stangardagar? Þetta skiptir máli. Miðfellsfljót í Laxá í Leirársveit gaf 332 laxa í fyrra.”
Vissulega skiptir stangafjöldi og stangardagar miklu máli. 332 yfir eitt sumar er svakaleg veiði og greinilegt að Miðfellsfljót er með betri veiðistöðum landsins. Vonandi senda fleiri okkur svona rosatölur af einstökum veiðistöðum.
