Hver er besti veiðistaðurinn?

Hver er besti veiðistaður landsins? Ekki vitum við hvort að margir velti því fyrir sér eður ei, en okkur grunar að það kunni að vera Rangárflúðir í Ytri Rangá(að ofan, mynd Heimir Óskarsson)). Eða Hnausi í Vatnsdalsá(hér að neðan, myndin af www.vatnsdalsa.is ). Við höfum hins vegar engar tölur yfir það, nema Hnausa reyndar. Við fórum því að velta fleiru fyrir okkur í þessum efnum.

Það eru til óhemju drjúgir veiðistaðir víða í laxveiðiám hér á landi. Staðir sem gefa laxa svo hundruðum skiptir. Líkt og við nefndum í byrjun þá er það hald okkar að enginn skáki Rangárflúðum. Í toppárum hefur sá veiðistaður gefið hundruð laxa. Hnausastrengur er alltaf í þessum flokki líka og síðasta sumar gaf hylurinn eigi færri en 523 laxa! Og eins og menn þekkja þá eru þeir margir stórir þar í bland. En það kom margt skemmtilegt í ljós þegar við flettum ársskýrslu SVFR, en þar hafa árnefndir tínt eitt og annað til eftir nýliðið sumar. Þar koma fram óvæntir staðir sem stórveiðistaðir. Eða kannski ekki svo óvæntir fyrir þá sem þekkja til.

Því miður eigum við ekki mynd af Brúarhyl í Leirvogsá, en þessi mynd sýnir svæðið þar niður af. Mynd Heimir Óskarsson.
Til dæmis gaf Brúarhylur í Leirvogsá 222 laxa! Það helgast auðvitað af því að áin fékk hörkugöngur sem sátu fastar neðst í ánni vegna langvarandi þurrka. Í Andakílsá er annar svona gríðarlega drjúgur staður, sá heitir hinu frumlega nafni Þrír. Sem sagt nafnlaus hylur sem ber númerið 3. Sá hylur gaf 211 laxa síðasta sumar, eða alls ekki langt frá þriðjungi sumaraflans af aðalsvæði árinnar, en það gaf alls 694 laxa. Annar hylur í ánni, Efri Fossbakkahylur, gaf 191 lax, þannig að saman gáfu þessir tveir hyljir 402 af 694 löxum sumarins!
Bugtin og Strenghorn í Straumunum. Mynd gg.
Straumarnir eru sama marki brenndir, þorrinn af aflanum kemur upp af sömu fáu fermetrunum. Þannig gaf Strenghornið 239 laxa og Bugtin 64. Þegar við skoðum þá staðreynd að þetta er að heita má sami veiðistaðurinn, þá gáfu þessir fáu fermetrar 303 af 368 löxum Straumana sl sumar. Ekki kæmi okkur á óvart ef að Möggustrengur á Brennu væri með samskonar statistík.
Annað svona „kombó“ er Strengirnir og Breiðan í Langá. Kannski ekki eins mikil samfella og Strenghorn og Bugt þar sem strengur er á milli, en þetta eru ekki margir metrar og alls gáfu þessir staðir samanlagt 326 laxa, Strengirnir 196 og Breiðan 130.
Annar svona súperstaður sem finna má í ársskýrslunni hjá SVFR er Langidráttur í Hítará, en hann gaf 179 laxa.
