Skýrsla eftir þurrkasumar

Ástþór yngri með sinn fyrsta flugufisk. Mynd Ástþór Jóh.
Það hefur ekki liðið sú vertíð síðan að VoV fór í loftið 2005 að Ástþór Jóhannsson leigutaki Straumfjarðarár hefur ekki skemmt okkur með pistlum sínum að vestan, þar sem málin hafa stundum verið krufin frá óhefðbundnum sjónarhornum. Ekkert heyrðist frá honum s.l. sumar, þannig að við ýttum við honum...
Ástþór brást vel við eins og hans var von og visa. Hér kemur pistil hans þar sem hann gerir upp þurrkasumarið 2010 á bökkum Straumfjarðarár:
"Nei það var nú sannast sagna lítið að frétta. Eftir einstaklega góða byrjun í sól og þurrki í lok júní, þá bjóst ég við að þetta yrði gott sumar. Nóg af fiski að ganga og fín veiði fyrstu þrjár vikurnar. Ég átti ekki von á því að fara í gegnum enn eitt þurrkasumarið, það fjórða. En þannig fór það. Engin rigning sem heitið gat. Smávegis í ágúst en ekki nóg til þess að setja þá á stað, hyljina þar sem fiskur lá í haugum, þegar leið á sumarið. Veiðin var þess vegna svona kropp, nánast allan júlí og fram í lok. Alltaf eitthvað, en bara svona 4 - 5 laxa dagar heilt yfir. Vantaði 15 - 20 laxa dagana. Þeir telja fljótt í fjögurra stanga á og í góðu vatni er það ekkert óalgengt hér þegar líður á vertíðina. Það klikkaði þetta árið. Því nóg var að fiski.

Grænistrengur í Straumfjarðará. Mynd Ástþór Jóh.
Laxinn tók illa í sólinni og hitanum. Áin var að mælast yfir tuttugu gráður þegar verst var og þá er nú ekki von um hvassar tökur. Svo ég hafði frá engu sérstöku að segja. Það má þó segja að góðu fréttirnar voru þær að áin sem ekki hefur verið svona lítil síðan árið 1987, en þá veiddist 161 lax í ánni, sem var einnig veidd með maðki á þeim tíma. Núna náðust þó á fluguna 360 laxar við svipuð skilyrði og þá. Það er alla vega meiri fiskur í ánni núna. Það sýndi sig vel í hittifyrra og árið þar áður þegar fór að rigna stíft eftir miðjan ágúst. Þá var súperfín veiði í lokin.
Síðustu tvö árin hafa alvöru síðsumarsrigningar látið á sér standa. Þær hafa verið að koma eftir lokun árinnar í september þegar mest af fiskinum er orðinn grútleginn og leiðinlegur til veiða. Vandinn er að snjóléttir vetur og stöðugar austanáttir yfir sumartímann eru okkur hér á nesinu óhagstæð. Vatnasviðið hér gerir ráð fyrir snjó í fjöllum og tvær til þrjár kröftugar sunnanrigningar yfir sumartímann. Ef það bregst þá eru vandræði í svona penni dragá, eins og Straumu.
Félagarnir við Hýrupoll.
Það vantaði hinsvegar ekki fiskinn þegar tekið var hér í klak fyrir tíu dögum. En svona er þetta þegar ekki rignir hér. Ég held að stóru dragárnar á Mýrunum hafa sjaldan verið svona litlar eins og í sumar. Bjargaði veiðitölum þar, að þær eru með blandað agn. Utan Haffjarðará sem er ansi spes veiðiá, verð ég að segja.
Undanfarin ár er eins og sumarlægðirnar hafi ekki drifið vestur með landinu, heldur fara þær suður með því og austur um og þess vegna hefur verið nóg vatn á norðausturlandi síðustu árin á meðan að við sitjum uppi með Vopnafjarðarblíðuna hér á nesinu, mánuðum saman yfir veiðitímann. Ekki það að ég mun seint blóta sólinni, en vonandi fæst rigning að ári.
Læt fylgja með mynd af honum nafna mínum en hann dró fyrstu flugubleikjuna sína í sumar.Töfrar veiðinnar og ánægjan sem þeim fylgir er ekki bundin í stórum fiskum eða miklum afla ef maður hefur hreint og saklaust hjartalag. Það bíður góðra íslendinga í framtíðinni að kunna að gleðjast yfir litlu. Þeir hlakka til þess eins og sjá mátti á fjölskylduhátíðinni á Austurvelli á dögunum.”
