Stabbi eða sjóbbi?
Við skrifuðum á dögunum að risaurriðinn úr Heiðarvatni hefði verið staðbundinn fiskur. Ekki eru nú allir sammála því og endurbirtum við myndina með ábendingum lesanda. Dæmi svo hver fyrir sig.
Það er kannski ekki stórmál hvort um staðbundinn eða sjógenginn urriða er að ræða, en gaman að svona vangaveltum. Við litum á myndina og sáum fyrir okkur staðbundið urriðatröll, en lesandi Matthias Eyjólfsson sendi okkur hins vegar póst með eftirfarandi orðum: „Það fer ekkert á milli mála að myndinni að dæma að þetta er sjóbirtingur en ekki staðbundinn urriði. Berið saman haus á sjóbirtingi og urriða. Haus á birtingi er meira stálslegin. Kannski erfitt að útskýra. Stór haus svolítið framlínulagaður. Þessi fiskur hefur sennilega gengið upp mánaðarmótin júlí / ágúst og kominn með smá lit á belginn.“
Þetta sagði Matthías sem sagt. Aftur skoðuðum við myndina og erum ekki jafn vissir og við vorum fyrst. Hvar eru t.d. rauðu dílarnir sem að svo oft greina staðbundinn urriða frá sjógengnum þó að það geti svo sem átt sér stað að fáir eða engir slíkir finnist á staðbundnum urriða. Okkur finnst hin vegar belgliturinn vera „staðbundinn“ og legnir sjóbirtingar í þessum landshluta séu frekar gráleitir, dekkri brúnir eða beinlínis svartir þegar þeir taka lit. En allt um það.....dæmi nú hver fyrir sig. Við tökum til baka staðhæfinguna um að fiskurinn sé staðbundinn. Hér að neðan er svo risaútgáfa af myndinni sem menn geta fært til og frá og skoðað betur....
