Magnaðar myndir úr Kjós

Myndirnar: ©www.designhouseone.com Palmi Einarsson 2010Einnig má skoða slóðirnar: www.designhouseone.com/flyfishing.html og http://www.designhouseone.com/
Við fengum póst frá Pálma Einarssyni ljósmyndara m.m. og hann bauð okkur birtingarleyfi á nokkrum myndum sem hann tók á bökkum Laxár í Kjós fyrir skemmstu. Þegar þið, lesendur góðir, skoðið myndirnar, þá sjáið þið að það var ekki hægt að hafna svo góðu boði.

Lax hefur tekið og fer um brotið í loftköstum.

Glæsileg tilþrif.....

...og ekki síðri hjá honum þessum.
Pálmi er veiðimaður af lífi og sál og sérlega liðtækur með myndavél að auki. Það er upplagt fyrir lesendur að kíkja á síðurnar hans, þar er fleira skemmtilegt að finna sem kitlar veiðidelluna. Smella má á slóðirnar sem sjá má hér fyrir ofan.

Kvíslafoss tekinn á tíma í magnaðri birtu kvöldsólarinnar.
En hér eru það myndirnar sem eiga að fá að njóta sín, en skal áréttað að myndirnar eru teknar við Kvíslafoss í Laxá í Kjós. Þar hefur verið mikið sjónarspil allra síðustu vikurnar, allir strengir og allar holur frá Laxfossi og niður í sjó fullar af laxi og fiskur á lofti um allt.
